Föstudagur 30.03.2012 - 16:14 - Ummæli ()

Herdís tekur slaginn gegn Ólafi Ragnari – Býður sig fram gegn fjármálaöflunum

Herdís tilkynnir ákvörðun sína um forsetaframboð. MYND/Pressphotos.biz

Herdís Þorgeirsdóttir ætlar að bjóða sig fram til forseta, en kostið verður 30. júní. Hún segist með framboðinu gera ákveðna lýðræðistilraun og ætlar hún til að mynda að reka framboðið með lágmarkskostnaði.

Herdís tilkynnti þetta á blaðamannafundi í Listasafni Reykjavíkur.

Með framboði sínu segist Herdís vera að gera ákveðna lýðræðistilraun. Hún ætli að kanna hvort hægt sé að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta og um leið gegn fjármálaöflum. Ætlar hún þess vegna að reka framboðið með „lágmarks tilkostnaði“.

Aðspurð hvort hún myndi beita málskotsréttinum svaraði hún því til að honum þyrfti að beita af varfærni, en bætti því þó við að þjóðin þurfi að vita að forsetinn geti beitt honum ef á þarf að halda.

Herdís er með doktorsgráðu í lögum á sviði mannréttinda og stjórnskipunarréttar, en einnig er hún með meistaragráðu í stjórnmálafræði. Hún starfar sem lögmaður í Reykjavík. Hún er forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga og starfar mikið fyrir Feneyjanefnd Evrópuráðsins á sviði mannréttinda.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is