Föstudagur 30.03.2012 - 22:19 - Ummæli ()

MR vann í 17. skiptið

Dómarar og spyrill voru í fantaformi

MR bar sigur úr býtum í úrslitaeinvígi Gettu betur í kvöld. Úrslitin réðust í síðustu spurningunni er MR náði í sitt 23. stig en sigurlið Kvennaskólans frá því í fyrra sat eftir með sárt ennið með 22 stig

Eins og úrslitin gefa til kynna var mikil spenna og dramatík í kvöld. Dómarar keppninnar héldu áfram að fara á kostum og áhorfendur sungu sem aldrei fyrr.

MR vann því hljóðnemann í kvöld í 17. skiptið frá því að keppnin fór fyrst fram árið 1986 en munar þar mest um samfellt sigurskeið skólans frá árinu 1993 til vorsins 2004.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is