Sunnudagur 01.04.2012 - 19:44 - Ummæli ()

Hundar tættu í sig kött í Grafarvogi – Voru komnir hálfir ofan í barnavagn

Hundur af tegundinni Siberian Husky. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Tveir stórir  hvítir hundar réðust  á kött fyrir utan hús í Foldahverfinu  Grafarvogi síðdegis í dag og drápu hann. Síðar kom önnur tilkynning um að sömu hundar höfðu verið hálfir ofan í barnavagni skammt frá.

Í lýsingu sjónarvotta sagði að hundarnir hlýddu ekki þótt kallað væri á þá, og að annar hundurinn hafi verið blóðugur um kjaftinn eftir að hafa ráðist á köttinn. Kötturinn var síðan úrskurðaður látinn síðar á Dýraspítalanum.

Lögreglumenn sáu til ferða hvítra Serbinian Husky hunda á hlaupum um hverfið og fóru inn í garða þar sem þeir misstu sjónar á þeim skamma stund. Síðar fundust hundarnir á Fjallkonuvegi. Lögreglumennirnir lokuðu hundana inni í garði og kom eigandinn á vettvang með ólar og tók hundana í sína vörslu


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is