Samkynhneigt fólk er víða ofsótt – Að tala um þjónustu við það sem samviskuspursmál elur á þeim fordómum
Baldur Kristjánsson prestur gerir að umfjöllunarefni sínu frétt sem birtist í dag um að rúmlega helmingur Dana vill gera það að skyldu presta að gefa saman samkynhneigð pör, jafnvel þó það stríði gegn samvisku þeirra.
Lög um hjónavíglsu samkynhneigðra taka gildi í Danmörku um miðjan júní. Danskir prestar munu þá hins vegar ráða því sjálfir hvort þeir gefi pörin saman. Könnunin bendir til þess að einungis fjórðungur landsmanna séu á þeirri skoðun á meðan rúmlega helmingur telur að banna eigi þeim að vísa hommum og lesbíum annað.
Baldur Kristjánsson prestur tjáir sig um málið á Eyjubloggi sínu:
Það segir sig nokkuð sjálft að aðeins tímaspursmál er hve lengi prestum og yfirleitt þeim sem framkvæma opinberar athafnir eða annast einhvers konar þjónustu líðst að mismuna fólki eftir kynhneigð.
og gefur ekki mikið fyrir venjur og hefðir kirkjunnar:
Röksemdir eins og þær að trúaratriði sé að mismuna megi fólki eftir kynhneigð, það sé félagslegt atriði eða partur af þjóðarsál eða kirkjuvenju að vísa megi fólki frá vegna kynhneigðar halda auðvitað ekki vatni og eru yfirleitt settar fram til að vinna tíma.
Skoðun Baldurs hvaða skref kirkjan ætti að stíga er einnig augljós:
Kirkjan ætti auðvitað að taka af skarið sjálf og sýna að hún giftir ekki samkynhneigt fólk með hangandi hendi, allir þjónar hennar geri það með sama geði og um gagnkynhneigt fólk væri að ræða eða leyni lund sinni ella.
Að lokum segir Baldur sem lengi hefur starfað við að bæta mannréttindi og berjast gegn fordómum á alþjóðavísu:
Samkynhneigt fólk er víða ofsótt og drepið í veröldinni. Það líður fordóma hér á landi. Að tala um þjónustu við það sem samviskuspursmál elur á þeim fordómum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is