Súkkulaði grennir – Skyndibiti getur ýtt undir þunglyndi
Í vikunni barst frétt um að súkkulaði hefði grennandi áhrif, afleiðingar af skyndibitaáti hafa ekki sömu afleiðingar svo vitað sé. Ný rannsókn sýnir hins vegar að fylgni sé á milli skyndibitaáts og þunglyndis og studdi hún fyrri rannsóknir á þessu sviði.
Samkvæmt rannsókn sem framkvæmt var af vísindamönnum við Háskólann í Las Palmas og Granada Háskóla og birtist í ritinu Public Health Nutrition kemur fram að þeir sem eru reglulegir neytendur skyndibita eru 51% líklegri til að þróa með sér þunglyndi. Með skyndibitamat eiga vísindamennirnir við bakarísmat og mat af hefðbundnum skyndibitastöðum.
Rannsóknin leiddi í ljós að það mengi þátttakenda sem borðuðu mestan skyndibita voru líklegri til að vera einhleypir, minna virkir og hafa slæmar matavenjur (borðuðu minni fisk, ávexti og grænmeti). Reykingar og lengri en 45 tíma vinnuvika voru jafnframt atriði sem tengdust hópnum.
Almudena Sánchez-Villegas aðal höfundur skýrslunnar segir að þó að frekari rannsókna sé þörf, þá sé nauðsynlegt að takmarka inntöku slíkrar fæðu vegna áhrifa bæði á líkama og andlega heilsu.
Niðurstöður vikunnar eru því einfaldar: Minni skyndibita, meira súkkulaði.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is