Krónan gerir Íslendinga að gjaldeyrisbröskurum – Innflæði fjármagns þýðir góðæri
Íslendingar eru gjaldeyrisbraskarar því allt of mikill tími landsmanna, einkum og sér í lagi atvinnulífsins, fer í að fylgjast með gengi krónunnar vegna þeirra áhrifa sem flökt hennar hefur á samfélagið, segir hagfræðiprófessor.
Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, hélt erindi á opnum fundi samtakanna Sjálfstæðir Evrópumenn í dag.
Í erindi sínu fjallaði Gylfi meðal annars um sérstakan krónuvanda sem felst fyrst og fremst í því hversu fljótt og sterkt áhrif gengisbreytinga koma fram í verðlagi. Þetta sé sérstakt vandamál fyrir Íslendinga vegna þess að gengisáhrifin koma ekki bara fram í verðlaginu, heldur einnig í gegnum skuldir. Á móti kemur að launaþróunin fylgir ekki gengi krónunnar.
Þetta þýðir í raun að kaupmáttur launa og skuldabyrði á Íslandi eru á fleygiferð,
segir Gylfi. Hann segir að í eðli sínu séu Íslendingar því gjaldeyrisbraskarar. Íslendingar séu stöðugt að hugsa um gengi krónunnar, ekki síst atvinnulífið þar sem slíkar vangaveltur séu stöðugar. Þetta hafi í för með sér mikinn kostnað fyrir atvinnulífið.
Gylfi velti því einnig fyrir sér hvers vegna talað sé um kreppu á Íslandi, á sama tíma og hagvöxtur hér er með því hæsta sem gengur og gerist meðal OECD ríkja. Hann segir að það skýrist af því að hér sé ekkert innflæði fjármagns.
Þegar talað er um góðæri á Íslandi sé það í raun þegar hér er stöðugt innflæði fjármagns, segir Gylfi. Það leiðir af sér sterkt gengi, lægri verðbólgu, aukinn kaupmátt og vaxandi útlán banka Innflæðið hefur líka í för með sér aukinn viðskiptahalla og um leið auknar skuldir.
Þessa stundina á sér stað útflæði fjármagns sem aftur á móti þýðir kreppu meðal Íslendinga. Gylfi segir að hægt sé að lifa við þennan krónuvanda með ýmsum „strúktúrbreytingum“. Þær breytingar feli hins vegar í sér ákveðin höft sem alla jafna er kvartað undan í atvinnulífinu. Vöxtur yrði hægari en um leið minnkar hættan á fjármálaáföllum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is