Ríkisstjórnin hrapar í vinsældum Sitjandi stjórn aðeins einu sinni mælst með minna fylgi
Fylgi ríkisstjórnarinnar mælist nú aðeins 28 prósent, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Aðeins einu sinni áður hefur sitjandi ríkisstjórn mælst með minna fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi.
Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV.
Samkvæmt Þjóðarpúlsinum mælist fylgi Samfylkingarinnar 17 prósent og fylgi Vinstri grænna 11 prósent. Samtals fá stjórnarflokkarnir því samtals 28 prósent. Aðeins ríkisstjórn Geirs H. Haarde hefur mælst með minna fylgi, í ársbyrjun 2009. Þá mældist fylgi ríkisstjórnarinnar 26 prósent.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 38 prósent atkvæða yrði gengið til kosninga nú. Framsóknarflokkurinn stendur í stað frá síðustu könnun og mælist með um 12 prósenta fylgi. Þrátt fyrir óánægju með ríkisstjórnina tapar flokkurinn fylgi frá síðustu kosningum.
Af nýju stjórnmálaöflunum fengi Samstaða mest fylgi, eða 9 prósent. Björt framtíð og Dögun fengju hvor um sig um 5 prósent.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is