Mánudagur 02.04.2012 - 10:25 - Ummæli ()

Undarlegar fréttir sem voru ekki ætlaðar sem aprílgabb

Roger Hayburst ætlar sér að verða næsti borgarstjóri Salford

Aprílgöbb íslenskra fjölmiðla voru misjöfn og það sama átti við erlendis. BBC greinir hins vegar í dag frá undarlegum fréttum sem voru ekki ætlaðar sem aprílgöbb, en ættu þó að vera teknar með ákveðnum fyrirvara.

Fyrst ber að nefna enska landsliðið sem mun verða fyrir nokkurri truflun á Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar. Leikið verður í Póllandi en frá hóteli liðsins mun á klukkutíma fresti vera leikið á blásturshljóðfæri í 30 sekúndur í senn til að minnast innrásar Mongóla árið 1241 en Daily Star Sunday greinir frá þessu.

Þá hefur Vladimir Putin gefið leyfi fyrir byssum sem breyta fórnarlömbum þess í „uppvakninga“ þar sem hún ræðst að miðtaugakerfinu. Frá þessu greinir Mail on Sunday.

Sun of Sunday segir frá því að hin tvítuga ofurhetja Roger Hayhurst sem vinnur undir heitinu Knight Warrior hyggist bjóða sig fram sem borgarstjóra fyrir Salford. Hann lofar að berjast gegn glæpum.

Í Sunday Times er grein um það að David Cameron forsætisráðherra muni gefa uppskrift af kryddpylsupasta fyrir matreiðslubók sem er ætlað að safna pening veik börn. Innherji í Westminister segir að það sé í níunda skiptið sem hann gefi sömu uppskrift í matreiðslubók til góðgerðarmála.

Vísindamenn við Oxford Háskóla hafa sótt um leyfi til breska ríkisins til að að fá samþykktan fyrsta bílinn án bílsstjóra til að keyra um að vegum landsins. Verður honum stjórnað af myndavélum og laser til að reikna út staðsetningu hans að sögn  Sunday Times.

Vísindamenn hafa leyst ,,bjórgleraugna“ráðgátuna, sem felst í því að fólki finnst manneskjur meira aðlaðandi eftir að hafa drukkið alkóhól. Vísindamennirnir við Roehampton háskólann hafa komist að því að dómgreindin til að meta hversu samhverf andlit eru (sem talið er lykilatriði við mat á hversu aðlaðandi fólk er útlitslega) brenglast. Independent greinir frá þessu.

Breska götublaðið Daily Star greinir frá því að fjallgöngumaður sem var við það að vera étinn af ljóni var bjargað af birni. Sérfræðingar eiga enn eftir að staðfesta frásögn hins hrædda ferðalangs.

Hefðbundin Pálmasunnudagsganga með ösnum var aflýst vegna heilsufars og öryggisástæðna. Skipuleggjendur höfðu þá fengið andmæli frá lögreglu af ýmsum toga, til að mynda að erfitt yrði að stjórna umferð, vegna trygginga og áhættumats. Um málið var fjallað á BBC.

Að lokum greinir Sunday Times frá því að áhættuleikari muni láta sig falla úr 2400 feta hæð í ,,fluggalla“ og lenda á hrúgu af pappakösssum. Takist allt upp mun hann lenda þar á 60km hraða en hrúgan mun vera 350 feta löng og 40 fet í breidd.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is