„Í hvað fóru 4,5 milljónir hjá Birni og Styrmi?“
Álfheiður Ingadóttir heimtar svör frá Birni Bjarnasyni vegna styrks frá Alþingi til Evrópuumfjöllunar.
Björn Bjarnason hefur verið í sviðsljósinu á undanförnum dögum. Fyrst fyrir að hafa gert innslag Landans um ESB og byggðarmál að umfjöllunarefni sínu og ásakað Gísla Einarsson fréttamann um ESB áróður og svo fyrir að segja Þóru Arnórsdóttir vinstri sinnaða og hafa mögulega lokið sjónvarpsferli sínum vegna þess að hún íhugi forsetaframboð.
Í framhaldinu beindust öll spjót að Birni og rökræður hans við Teit Atlason vöktu þónokkra athygli. Nú hefur Álfheiður Ingadóttir þingkona blandað sér í leikinn og telur að Björn verði að svara þeim spurningum sem að honum er beint. Á bloggsíðu sinni segir þingkonan:
Er hér skorað á Björn að birta skýrslu sína til alþingis svo alþjóð megi sjá hvernig 4,5 milljónum sem þeir Styrmir fengu af peningum skattgreiðenda var varið 2011. Því allir hljóta að taka undir með Teiti að það er ekki mjög trúverðugt sem lesa má á vef þeirra félaga þegar sagt er: „Þegar rætt er við skoska þjóðernissinna“. eða „..áhrifamikill stuðningsmaður Angelu Merkel sagði” eða “viðmæland minn sagði“, eða “þingmaður sem ég hitti“ eða „boðskapur hóps fræðimanna hjá SWP var skýr..“.
Og þingkonan gefur ekki mikið fyrir að 4,5 milljónum hafi verið varið í þessi samtöl:
Því verður a.m.k. ekki trúað að slíkt spjall hafi kostað 4,5 milljónir króna enda lítil “rannsókn” í því fólgin. Peningarnir hljóta að hafa farið í eitthvað annað. En hvað? Því verður Björn Bjarnason að svara, ætlist hann til þess að alþingi taki nýja umsókn frá þeim félögum alvarlega.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is