Viðskipti Miðvikudagur 04.04.2012 - 09:48 - Ummæli ()

Óhreyfðir milljarðar notaðir til góðgerðarmála – Engin ástæða til að styrkja fjármálafyrirtækin

Einn og hálfur milljarður stendur óhreyfður í bönkum og öðrum fjármálafyrirtækjum.

Hægt væri að nota þá 1,5 milljarða króna sem staðið hafa óhreyfðir um langt árabil inni á innlánsreikningum í góðgerðarstarfsemi, segir þingmaður. Til að mynda væri hægt að fjármagna viðskiptahugmyndir langtímaatvinnulausra, aðstoða ungt fólk við að fá vinnu og koma af stað samfélagslegum hlutabréfamarkaði.

Í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur kom fram að einn og hálfur milljarður króna hefur staðið óhreyfður á innlánsreikningum í 15 ár eða lengur. Ef eigendur þessara fjármuna hafa ekki vitjað þeirra að 20 árum liðnum fyrnast þeir og renna til fjármálafyrirtækjanna.

Eygló bendir á að Bretar hafi á sínum tíma að engin ástæða væri til að styrkja fjármálafyrirtækin sérstaklega hvað þessa reikninga varðar. Breyttu þeir lögum þannig að óhreyfðir reikningar fyrnast á 15 árum og fara síðan í sérstakan sjóð sem styrkir góðgerðarmál. Sjóðinn kalla Bretar Big Society Investment Fund.

Markmið sjóðsins er að tryggja almenningi meiri áhrif og tækifæri til að stjórna lífi sínu. Hefuer hannmeðal annars fjármagnað viðskiptahugmyndir atvinnulausra, aðstoðar ungt fólk í atvinnuleit, bætir orkusjálfbærni samfélaga og kom af stað samfélagslegum hlutabréfamarkaði.

Eygló vill að íslensk stjórnvöld fylgi fordæmi Breta í þessum efnum.

Ég hef mikinn áhuga á að sjá sambærilegt verkefni  hér á landi. Þess vegna hef ég lagt fram frumvarp um skattaívilnanir til góðgerðasamtaka, spurst fyrir um óhreyfða innlánsreikninga og hyggst koma fram með frekari tillögur þessa efnis.

Er ekki löngu kominn tími til að styðja við samfélagið okkar og hvetja til samvinnu?

Grein Eyglóar Harðardóttur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is