Viðskipti Miðvikudagur 04.04.2012 - 18:30 - Ummæli ()

Íslandsbanki varar við áhrifum kvótafrumvarpa – Hefur neikvæð áhrif á alla bankana

Það er álit Íslandsbanka að kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar munu hafa veruleg áhrif á rekstrarafkomu sjávarútvegsfyrirtækja og sjávarútveginn í heild sinni, meðal annars að þau dragi verulega úr fjárfestingum. Þá munu breytingarnar sömuleiðis hafa neikvæð áhrif á efnahag viðskiptabankanna þriggja.

Þetta kemur fram í áliti Íslandsbanka um kvótafrumvörpin tvö sem lögð hafa verið fram á Alþingi.

þar segir að rekstur sjávarútvegsfyrirtækja hafi gengið vel síðustu ár og að arðsemi þeirra hafi aukist jafnt og þétt, þrátt fyrir hækkandi olíuverð og samdrátt í aflaheimildum.

Í álitinu segir að sérstaka veiðigjaldið verði til þess að lítill hagnaður verði eftir fyrir sjávarútvegsfyrirtækin. Það muni óneitanlega veikja íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og jafnvel valda því að þau geti ekki staðið við skuldbindingar sínar.

Sérstaka veiðigjaldið felur einnig í sér að íslenska ríkið tekur til sín stærsta hluta þess virðisauka sem verður til meðal annars við uppbyggingu vörumerkja og gæðastaðla, sérhæfingu og hagkvæmni í nýtingu á fiskafla. Slík uppbygging er kostnaðarsöm og því er hætta á að sá hluti starfseminnar færist frá sjávarútvegsfyrirtækjunum og flytjist jafnvel úr landi til að komast hjá því að virðisauki hennar verði notaður í stofn til útreiknings veiðigjalds.

Bankinn telur jafnframt að breytingarnar hafi töluverð áhrif á starfsemi viðskiptabankanna og þar af leiðandi fjármögnunarleiðir sjávarútvegsfyrirtækja. Líklegt sé, nái frumvörpin í gegn að ganga, að fjárfestingar í sjávarútvegi dragist saman.

Erfitt  verður fyrir sjávarútvegsfyrirtækin að byggja upp eigið fé á sama tíma og fjárflæði dregst saman. Þetta veldur því að erfiðara er fyrir þau að fá ný lán og mun hamla nýliðun þar sem nýir aðilar munu þurfa  að leggja fram mikið eigið fé eða eiga aðrar eignir til veðsetningar til að hefja rekstur. Þar sem fjárfestingageta fyrirtækjanna minnkar mun skipaflotinn eldast og framþróunin verða lítil sem engin.

Hér má lesa álit Íslandsbanka í heild.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is