Miðvikudagur 04.04.2012 - 10:29 - Ummæli ()

Þóra boðar fjölmiðla á fund vegna forsetaframboðs – Búið að skrá thoraarnors.is

Þóra Arnórsdóttir hefur boðað til blaðamannafundar síðdegis í dag, þar sem hún mun skýra frá ákvörðun sinni varðandi framboð til forseta Íslands.

Fram kom á Eyjunni í morgun að Þóra hafi þegar greint sínum nánustu vinum frá því að hún ætlaði að bjóða sig fram til forseta. Kosið verður þann 30. júní.

Þóra hefur nú boðað fjölmiðlamenn til fundar í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag og mun hún ávarpa fundinn klukkan 16:30. Afar líklegt er að þar muni hún tilkynna framboð, en í gær var lénið thoraarnors.is skráð hjá Internet á Íslandi sem bendir til þess að undirbúningur framboðsins sé þegar hafinn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is