Fimmtudagur 05.04.2012 - 16:47 - Ummæli ()

Óeirðir í Aþenu vegna sjálfsvígs ellilífeyrisþega – Kenndi stjórnvöldum um í bréfi

Óeirðalögregla á Sytagma torgi í Aþenu. MYND/Getty images

Til óeirða kom í Aþenu í gærkvöldi eftir að 77 ára karlmaður svipti sig lífi á fjölförnu torgi í gær. Hundruð mótmælenda söfnuðust saman fyrir utan þinghúsið og kom til átaka, þar sem bensínsprengjum var kastað í átt að lögreglu sem svaraði með táragasi.

Eins og Eyjan greindi frá í gær dró maðurinn upp byssu á hinu fjölfarna Syntagma torgi í Aþenu og skaut sig í höfuðið, fyrir framan fjölda fólks.

Grískir fjölmiðlar hafa greint frá því að maðurinn hafi skilið eftir kveðjubréf, þar sem hann sakaði stjórnvöld um að hafa skert ellilífeyri sinn svo mikið, að hann ætti orðið ekkert.

Fjölmargir hafa komið saman á torginu og lagt blóm á staðnum þar sem maðurinn skaut sig.

Maðurinn hét Dimitris Christoulas og starfaði sem lyfjafræðingur áður en hann settist í helgan stein árið 1994. Hann var giftur og átti eina dóttur.

Ríkisstjórnin er búin að sóa allri afkomu minni sem var byggð á ríkulegum sjóði sem ég sá alfarið um að byggja upp í 35 ár, án nokkurrar aðstoðar frá ríkinu. Og þar sem aldur minn geri mér ekki kleift að bregðast við…þá sé ég enga aðra lausn en að enda líf mitt á þennan virðulega hátt, áður en ég fer að róta í ruslatunnum til framfleyta mér,

segir í kveðjubréfi mannsins og BBC greinir frá. Sjálfsvígum í Aþenu hefur fjölgað um 25 prósent undanfarið ár. Einn af hverjum fimm Grikkjum er án atvinnu, þar af helmingur ungmenna. Í fyrra hringdu 5 þúsund manns í sjálfsvígshugleiðingum í sérstakan neyðarsíma, sem er helmings aukning frá árinu áður.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is