Viðskipti Fimmtudagur 05.04.2012 - 10:06 - Ummæli ()

Ráðinn þrátt fyrir ítrekuð samkeppnislagabrot – Hlýtur að skoða stöðu sína, segir þingmaður

Fyrirtæki undir stjórn Brynjólfs Bjarnasonar hafa ítrekað gerst sek um samkeppnislagabrot. Nú síðast var Síminn sektaður um tæpan hálfan milljarð króna. Engu að síður var Brynjólfur ráðinn sem framkvæmdastjóri Framtaksssjóðs.

Síminn sektaði í vikunni Símann um 440 milljónir króna misnotkun á markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins. Brotin áttu sér stað yfir sex ára tímabil á árunum 2002 til 2007 og var Brynjólfur forstjóri Símans síðustu fimm árin.

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir við Fréttatímann að Brynjólfur hljóti að spyrja sjálfan sig að því hver sé munurinn á honum og Þórólfi Árnasyni, sem þurfti að segja af sér vegna aðkomu hans í olíusamráðsmálinu.

Hann hlýtur að skoða sína stöðu,

segir Mörður. Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðsins, sem er í eigu Landsbankans og fimmtán lífeyrissjóða auk VÍS, segist bera fyllsta traust til Brynjólfs. Það geri stærstu hluthafar sjóðsins sömuleiðis.

Samkeppniseftirlitið hefur fjórum sinnum á liðnum árum komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi brotið samkeppnislög og í öll skiptin var Brynjólfur ýmist forstjóri Símans eða móðurfélagsins Skipta. Fyrri sektir námu 50, 60 og 400 milljónum.

Nú síðast var Síminn sektaður um 440 milljónir. Þar af voru 50 milljónir til komnar vegna þess að Síminn gaf  upp villandi upplýsingar. Það gerðist einnig í tíð Brynjólfs.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is