Ryanair gerir allt til að létta flugvélarnar…og flugfreyjurnar – Spara fúlgur í eldsneytiskostnað
Síhækkandi eldsneytisverð hefur orðið til þess að flugfélög víða um heim grípa til óhefðbundinna aðhaldsaðgerða. Nú hefur hinn umdeildi forstjóri Ryanair, Michael O´Leary, tekið þá ákvörðun að létta allt sem hægt er að létta um borð í vélum félagsins, þar með talið flugfreyjurnar.
Himinhátt eldsneytisverð hefur valdið Ryanair, rétt eins og öðrum flugfélögum í heiminum, miklum höfuðverk. Til að spara eldsneyti hafa forráðamenn félagsins ákveðið að fara þá leið að létta flugvélarnar eins og kostur er.
Þannig tilkynnti Ryanair að flugtímarítið verði framvegis prentað á léttari pappír en áður, sem kemur til með að spara nokkur þúsund pund í eldsneytis- og prentkostnað á ári. Þá verður minna magn af ísmolum sett um borð í vélarnar en áður, auk þess leitast verður við að létta sæti og vagna um borð í vélunum.
En stjórnendur Ryanair vilja ganga lengra og hafa farið fram á það við flugliða félagsins að passa upp á aukakílóin.
Við hvetjum starfsfólk okkar til að passa upp á þyngdina,
segir talmsaður Ryanair við Telegraph og bætir því við að hvatningin fyrir starfsfólkið sé sú að komst í hið fræga dagatal sem félagið gefur út á hverju ári.
Ryanair er reyndar ekki frumkvöðull á þessu sviði, því bæði Thai Air og Turkish Airlines settu völdum starfsmönnum sínum þá afarkosti að annað hvort skyldu þeir léttast eða missa starfið.
Árið 2008 fékk Air Canada leyfi til að skipta björgunarvestum út fyrir léttari flothylki í flugvélum sem fljúga ekki lengra en 50 mílur út fyrir strandlengjuna. Þá sparaði American Airlines 40 þúsund dollara á ári með því að skera niður eina ólívu úr hverju salati sem boðið var upp á í vélum félagsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
