Deloitte stendur við útreikninga um veiðigjald – Niðurstöður okkar fást ekki keyptar
Þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi gert alvarlegar athugasemdir við útreikninga Deloitte á áhrifum veiðigjalds í sjávarútvægi stendur endurskoðunarfyrirtækið við niðurstöður sínar. Félagið hafnar því með öllu að niðurstöðurnar séu keyptar.
Deloitte birti í vikunni niðurstöður úttektar á áhrifum fyrirhugaðs veiðigjalds. Niðurstaða fyrirtækisins var sú að hefði veiðigjaldið verið gildandi lög hefði ríkissjóður tekið til sín 105% af hagnaði sjávarútvegsins á árunum 2001-2010.
Ríkisstjórnin birti í gær athugasemdir við útreikninga Deloitte og sagði þá ýmist ranga eða villandi. Þannig hafi verið litið framhjá mörgum frádráttarliðum og að Deloitte hafi lagt upp með hæpnar og beinlínis rangar forsendur.
Deloitte hefur nú svarað þessum aðfinnslum stjórnvalda og segist standa við allar sínar fyrri niðurstöður. Bendir fyrirtækið á að stjórnvöld hafi fram að þessu ekki birt neina útreikninga um áhrif og afleiðingar breytinganna.
Deloitte kannaði málið þegar um var beðið í aðdraganda fyrrnefnds fundar, stendur við niðurstöður sínar að öllu leyti og lýsir sig reiðubúið að fara yfir málið með ráðherra og ráðgjöfum hans. Látið er að því liggja, t.d. í skrifum aðstoðarmanns ráðherra í Fréttablaðinu á skírdag, að niðurstaða Deloitte sé „keypt“ af útvegsmönnum og því ekki marktæk. Slíku vísum við á bug. Deloitte er alþjóðlegt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki og niðurstöður þess fást ekki keyptar.
Í athugasemdum Deloitte kemur meðal annars fram að fyrirtækið hafi í engu gleymt áhrifum tekjuskatts í útreikningum sínum, heldur hafi verið tekið fullt tillit til þeirra.
Þá gerir Deloitte athugasemdir við þá röksemdafærslu að skattleggja þurfi sjávarútveginn sérstaklega vegna þess að hann hafi hagnast á gengi krónunnar að undanförnu.
Nú er það svo að allar útflutningsgreinar, einnig áliðnaður og ferðaþjónusta, eru háðar gengi krónunnar. Gengissveiflurnar hafa verið miklar í báðar áttir á síðustu 10 árum. Á sama röksemd þá ekki alveg eins við um önnur útflutningsfyrirtæki, t.d. í áliðnaði og ferðaþjónustu?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is