Detroit afsalar sér fjárhagslegu sjálfstæði – Niðurlæging bílaborgarinnar fullkomnuð

Algeng sjón í Detroit - Þúsundir húsa standa auð og yfirgefin og bíða þess að verða jöfnuð við jörðu.
Detroit var um miðja 20. öldina táknmynd ameríska hagkerfisins, enda vagga bandarískrar bílaframleiðslu. Hnignun borgarinnar undanfarna áratugi hefur verið með ólíkindum og niðurlægingunni var náð í gær þegar borgaryfirvöld gáfu fjárhagslegt sjálfstæði hennar upp á bátinn.
Árin eftir síðari heimstyrjöldina var blómaskeið Detroit borgar. Þegar hæst stóð bjuggu rétt tæplega 2 milljónir manna í borginni og hafði þeim fjölgað verulega á millistríðsárunum. Bílaframleiðslan náði hámarki árið 1955, en þá tók að halla hægt undan fæti. Það er ekki hins vegar fyrr en á síðustu 20 árum sem allt hefur legið beina leið niður á við.
Íbúar í dag eru orðnir rétt rúmlega 700 þúsund og ástandið í þessari áður fjórðu stærstu borg Bandaríkjanna er með ólíkindum. Ástæðan fyrir þessari hnignum er einföld: bílaiðnaður Bandaríkjanna hefur orðið undir í samkeppninni við Asíu og að einhverju leyti Evrópu.
Störfin hafa hreinlega flogið í burtu. Á blómaskeiðinu var Chrysler bílaframleiðandinn með 130 þúsund starfsmenn í vinnu. Þeir eru nú 4.500. Tæplega 20 prósent íbúa borgarinnar eru án atvinnu.
Á sama tíma hafa tekjur borgarinnar dregist all verulega saman og nú er svo komið að Detroit er ekki lengur viðbjargandi. Borgarráðið samþykkti í gær, með 5 atkvæðum gegn 4, að færa fjárveitingarvald Detroit yfir til Lansing, höfuðborgar Michigan fylkis.
Það voru í raun ekki margir kostir í stöðunni. Fjárlagahallinn hljóðar upp á 200 milljónir dollara og langtímaskuldir borgarsjóðs eru 13,2 milljarðar dollara. Niðurstaðan hefði þó getað orðið verri fyrir Detroit. Ríkisstjóri Michigan fylkis, Rick Snyder, var tilbúinn með neyðarlög þar sem koma átti á neyðarstjórn sem hefði svipt borgarstjórann og borgarráðið öllum völdum. Samkomulagið um að fela Lansing fjárveitingarvaldið náðist aðeins klukkustundum áður en setja átti neyðarlögin.
Efnahagslífið í Michigan hefur verið á uppleið undanfarin misseri. Detroit hefur hins vegar setið eftir þrátt fyrir fjölmargar tilraunir til að blása lífi í efnahag borgarinnar, meðal annars byggingu tveggja stórra spilavíta. Þrátt fyrir það heldur fólksfækkunin áfram.
Detroit fór einstaklega illa út úr undirmálslánakrísunni og segja sérfræðingar að borgin sé í raun „ground zero“ þessara lána. Frá árinu 2007 hafa lánardrottnar tekið yfir 28 þúsund heimili í borginni. Víða um borgina má sjá yfirgefin og niðurnídd hús. Nú þegar hafa 10 þúsund slík hús verið jöfnuð við jörðu. Sömu örlög bíða 26 þúsund húsa til viðbótar.
Ekki eru horfur á að atvinnuástandið batni í bráð, því talið er að eitt fyrsta verkefni ríkisstjórans í Lansing verði að draga saman í rekstri borgarinnar. Það þýðir uppsagnir og lægri laun.
80 prósent íbúa Detroit eru af afrískum uppruna og langflestir eru á bandi Demókrata. Niðurlægingin fyrir íbúa Detroit er því enn meiri í ljósi þess að ríkisþinginu í Michigan er stjórnað af Repúblíkönum og fylkisstjórinn er hvítur Repúblíkani. Margir líta því á samkomulagið sem fjandsamlega yfirtöku.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is