Laugardagur 07.04.2012 - 17:09 - Ummæli ()

Klukkan á Íslandi er einum og hálfum tíma of fljót, segir læknir – Skýrir það mikla svefnlyfjanotkun?

Réttast væri að seinka klukkunni á Íslandi um eina klukkustund, jafnvel tvær klukkustundir, til leiðréttingar við stöðu sólar, segir læknir sem spyr hvort „alltof mikil“ notkun svefnlyfja á Íslandi tengist því að lífsklukka landsmanna sé skökk.

Vilhjálmur Ari Arason, heimilislæknir, gerir gang klukkunnar að umræðuefni í grein sem hann skrifar á Eyjuna, en umræða um sumartíma er komin aftur af stað eftir að greint var frá því að meðal þeirra krafna sem Evrópusambandið gerir – ef að aðild verður  – er að hér verður tekin upp sumartími. Það er, ef ekki verður samið um áframhaldandi undanþágu.

Vilhjálmur segir það sjálfsagt mál að seinka klukkunni á íslandi um eina klukkustund til leiðréttingar við sólstöðuna, líkt og gert er víðast hvar í heiminum. Með því mun dagsbirtan haldast í takt við svefn- og lífsklukku landsmanna.

Það kann að minnsta kosti aldrei góðri lukku að stýra, að plata hana móður náttúru. Og að stela af henni tæpum tveimur tímum á dag, eins og nú er. Ekki síst á veturna þegar ekki veitir af birtunni sem fyrst á morgnana.

Bent hefur verið á að svefnklukka unglinga sé nú þegar 2 klukkustundum of fljót miðað við svefnklukku fullorðinna. Kemur það fram í því að unglingar vilja frekar vaka fram eftir kvöldi og sofa lengur fram eftir á morgnana.

Þegar sú skekkja bætist við skekkju á klukkunni sjálfri í dag á Íslandi um eina og hálfa klukkustund, að þá nálgast svefnklukka unglinga hér á landi að vera nær 3-4 tímum of fljót miðað við sólarganginn. Skekkjan samsvarar að við sem erum orðin fullorðin, þyrftum að vakna alltaf upp um klukkan fjögur á nóttunni. Þetta getur auðvitað skipt börn og unglinga miklu máli, ekki síst þegar árvekni og athyglinnar er mest þörf, við nám í skólanum á morgnana. Fyrir börn og unglinga væri því best að seinka klukkunni um heila tvo tíma.

Loks bendir Vilhjálmur á að notkun svefnlyfja á Íslandi sé nærri fjórfalt meiri hér á landi en í Danmörku. Á sama tíma og notkunin dregst saman á Norðurlöndum, eykst hún ár frá ári á Íslandi. Vilhjálmur spyr hvort skýringin sé sú að Íslendingar taki ekki nægilega mikið mark á lífsklukkunni, hvað svefninn varðar.

Hér má lesa grein Vilhjálms.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is