Laugardagur 07.04.2012 - 19:45 - Ummæli ()

Rótgróinn karlaklúbbur orðinn að skotspóni jafnréttissinna – Forstjóri IBM þrýstir á inngöngu

Engar konur hér, segja forráðamenn Augusta National golfklúbbsins. Það gæti þó breyst innan skamms.

Verulega er þrýst á forráðamenn Augusta National golfklúbbsins að víkja frá rótgróinni hefð og leyfa loksins konum að gerast meðlimir. Málið er orðið hápólitískt því Barack Obama Bandaríkjaforseti og forsetaframbjóðendur Repúblíkana hafa blandað sér í umræðuna.

Masters risamótið fer fram á Augusta vellinum um helgina og hefur það orðið til þess að vekja athygli á þeirri stefnu golfklúbbsins að einungis karlmenn geta orðið meðlimir. Svona hefur þetta verið síðan klúbburinn var stofnaður árið 1932. Konur eru þó ekki útilokaðar frá vellinum, því þær mega spila ef þær fá boð frá karlkyns meðlimum.

Forráðamenn Augusta hafa ekki viljað tjá sig opinberlega um málið. Þeir eru þó komnir í bobba því á dögunum var hin 54 ára gamla Virginia Rometty ráðin forstjóri tæknirisans IBM, fyrst kvenna.

Einhverjir spyrja sig nú eflaust að því hvernig þetta tvennt tengist, það er aðgangur að Augusta National golfklúbbnum og fyrirtækið IBM.

Jú, málið er að IBM hefur í gegnum árin verið einn helsti styrktaraðili Masters mótsins. Í staðinn hefur forstjórum IBM verið boðin aðild að golfklúbbnum og alls eru fjórir fyrrum forstjórar IBM meðlimir í Augusta National.

Forráðamenn golfklúbbsins eru því í klípu. Þeir þurfa annað hvort að brjóta odd af oflæti sínu og samþykkja aðild kvenna, eða útskýra fyrir sínum aðalstyrktaraðila hvers vegna forstjóri fyrirtækisins fær ekki aðild, ólíkt forverum sínum.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem umræða af þessu tagi kemur upp. Árið 2002 gerðu jafnréttissinnar harða atlögu að golfklúbbnum sem forráðamenn hans tókst að standa af sér.

Óvíst er hvort þeir standi jafn fastir fyrir í þetta skiptið, því málið er nú orðið hápólitískt eftir að Barack Obama lýsti því yfir í fyrradag að golfklúbburinn ætti að hleypa konum í klúbbinn. Mitt Romney, sem er líklegur til að verða forsetaframbjóðandi Repúblíkana, hefur tekið í sama streng.

John McCain, fyrrum forsetaframbjóðandi Repúblíkana, sagði á Twitter síðu sinni í gær:

Teljið þið ekki að það sé kominn tími til að Augusta National stígi inn í 21. öldina – eða  þá 20. – og leyfi konum að verða meðlimir?

Augusta National hefur aldrei opinberað hverjir meðlimir klúbbsins eru, en talið er að þeir séu um 300 talsins. Þeirra á meðal eru valdamestu menn bandarísks viðskiptalífs,  til að mynda Bill Gates og Warren Buffet.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is