Laugardagur 07.04.2012 - 11:56 - Ummæli ()

Þóra og stuðningsmenn safna undirskriftum – Bjóða í kaffi á heimili Þóru og Svavars

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

Stuðningsmenn Þóru Arnórsdóttur hófu í morgun söfnun meðmælenda um allt land vegna forsetaframboðs hennar. Um það bil 320 manns taka þátt, 100 á höfuðborgarsvæðinu og 220 út um land.

Stuðningsmennirnir komu saman á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Annars vegar í gömlu heilsuverndarstöðinni að Barónsstíg 47, en þar verður aðalkosningaskrifstofa framboðsins.

Hins vegar hittist hópur á heimili Þóru og Svavars Halldórssonar í Hafnarfirði. Á báðum stöðum var boðið upp á morgunkaffi með heimabakstri sem stuðningsmenn lögðu til.

Skipulögð söfnun meðmælenda verður á a.m.k. 51 stað á landinu í dag og stuðningsmenn Þóru fara um flest sveitarfélög. Þeir verða við verslanir, á bensínstöðvum, á bryggjunni – hvar sem fólk kemur saman, að því er segir í tilkynningu frá stuðningsmönnum Þóru.

Veztfirska verzlunin við Silfurtorg á Ísafirði er einn þeirra staða sem verður að að nokkurs konar kosningaskrifstofu í dag og þar verður tónlistarflutningur og heitt á könnunni. Á nokkrum stöðum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar, er í boði súpa eða annað góðgæti í heimahúsum og meðmælendalistar liggja þar frammi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is