Eftirminnileg tilþrif í veðurfréttum RÚV – Tekur létt dansspor fyrir framan alþjóð
Óhætt er að segja að boðið hafi verið upp á veðurfréttir í Ríkissjónvarpinu með óvæntu sniði að kvöldi páskadags. Sjónvarpsáhorfendur fengu alla vega að sjá tilþrif sem verða lengi í minnum höfð.
Það var veðurfræðingurinn Einar Magnús Einarsson sem las veðurfréttirnar í kvöld. Allt gekk að óskum þangað til að Einar Magnús fór að lýsa spákortinu fyrir Norðausturhluta landsins. Þá vefst honum tunga um tönn, frussar eilítið út úr sér og tekur létt spor fyrir framan veðurkortið, með miklum tilþrifum.
Svo virðist sem vitlaus upptaka hafi farið í loftið, því tæknimenn voru fljótir að átta sig og gerðu hlé á útsendingu. Skömmu síðar birtist Einar Magnús aftur á skjánum og flutti veðurfréttirnar eins og ekkert hafi í skorist.
Ekki er annað að sjá en að landsmenn hafi haft gaman að þessum tilþrifum veðurfræðingsins, ef marka má viðbrögð fólks á Facebook. Í það minnsta hafa veðurfréttir sjaldan eða aldrei fengið önnur eins viðbrögð á samskiptasíðunni vinsælu. Enn fremur er líklegt að myndskeiðið rati á Youtube innan skamms þar sem það mun njóta mikilla vinsælda.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
