Sunnudagur 08.04.2012 - 17:59 - Ummæli ()

Látinn dúsa í einangrun í tvö ár vegna ölvunaraksturs – Fékk greiddar hæstu bætur vegna mannréttindabrota

Stephen Slevin, fyrir og eftir að hann var látinn dúsa í einangrun í tvö ár.

Árið 2005 var Stephen Slevin stöðvaður af lögreglu á hraðbraut í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum, grunaður um ölvunarakstur. Það var ekki fyrr en tveimur árum síðar sem hann fékk frelsi sitt á ný. Þá var hann búinn að missa þriðjung þyngdar sinnar – og vitið.

Yfirvöldum í Dona Ana sýslu í Nýju Mexíkó var á dögunum gert að greiða Slevin heilar 22 milljónir dollara í skaðabætur vegna þeirrar meðferðar sem hann hlaut þann tíma sem hann var í haldi lögreglu. Þetta eru hæstu skaðabætur sem fangi hefur fengið greiddar frá hinu opinbera vegna mannréttindabrota, að því er segir í The Independent.

Þótt Slevin hafi verið haldi lögreglu í tvö ár, mest megnis  í einangrun, þá var hann í raun aldrei dæmdur í fangelsi. Það var ekki fyrr en mál hans kom til kasta dómstóla að í ljós kom að mannréttindi hans höfðu verið fótum troðin í allan þennan tíma. Enn er hins vegar á huldu hvers vegna löggæsluyfirvöld völdu að halda honum í einrangrun í allan þennan tíma.

Slevin heldur því fram að honum hafi verið meinaður aðgangur að þvottaaðstöðu svo mánuðum skipti. Hann missti þriðjung líkamsþyngdar sinnar, fékk aldrei að raka sig og var með fjölda legusára þegar hann losnaði úr fangelsinu.

Forráðamenn fangelsisins meinuðu honum einnig að fara til tannlæknis, þannig að hann þurfti sjálfur að rífa úr sér eina tönn. Slevin fór einnig fram á að hitta geðlækni, því  hann segist á þessum tíma hafa verið orðinn mjög veruleikafirrtur.

Fangaverðirnir gengu framhjá mér á hverjum degi og horfðu upp á mig brotna niður.

Slevin glímir enn við afleiðingar vistarinnar í prísundinni, og þjáist hann af áfallastreituröskun á háu stigi.

Mál Slevins hefur orðið til þess að vekja athygli á notkun eingangrunarvistar í bandarískum fangelsum. Talið er að 50 þúsund fangar séu hafðir í slíkri vist í dag, margir þeirra jafnvel svo árum skipti.

Yfirvöld í Dona Ana sýslu höfðu boðið Slevin 2 milljónir dollara fyrir að falla frá málsókn. Þau ætla að áfrýja dómnum þar sem þau telja sig vera með sterkt mál í höndunum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is