Ríkið byrji að minnka hlut sinn í bankanum á næsta ári, segir Steinþór – Líf bankamanna bærilegt á ný
„Nú hafa aðstæður breyst og starfsmenn okkar geta sótt fjölskylduboð án vandkvæða,“ segir Steinþór Pálsson, forstjóri Landsbankans. Hann segist í viðtali við Financial Times gera ráð fyrir að Landsbankinn verði kominn á markað á næsta ári.
Í umfjöllun Financial Times um íslensku bankana segir að svo gott sem á næsta ári gætu allir þrír bankarnir verið komnir að fullu í eigu einkaaðila.
Það er enn lengur vegur framundan, en ástandið er að komast í eðlilegt horf. Við munum væntanlega verða skráð á markað á næsta ári og þá mun ríkið smám saman minnka hlut sinn í bankanum,
segir Steinþór. Í greininnni er haft eftir Birnu Einarsdóttur, forstjóra Íslandsbanka, að fjárhagslegri endurskipulagningu viðskiptavina bankans sé að mestu lokið á meðan Höskuldur Ólafsson hjá Arionbanka segir bankann smám saman að komast í það horf, að hann kveiki áhuga á meðal fjárfesta.
Niðurstaða greinarhöfundar FT er almennt sú að íslenska bankakerfið sé á ágætu róli, miðað við það sem á undan er gengið. Það sama má segja um bankamennina sjálfa, ef marka má forstjóra Landsbankans.
Fyrir tveimur árum áttu starfsmenn okkar í erfiðleikum með að mæta í fjölskylduboð því fólk var stanslaust að kvarta undan bönkunum. Nú hafa aðstæður breyst og starfsmenn okkar geta sótt fjölskylduboð án vandkvæða.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is