Boðsferð til Íslands veldur heilabrotum – Icelandair mátti bara splæsa á þrjá
Það var ekki hlaupið að því fyrir starfsmenn Denver borgar að komast til Íslands í boði Icelandair. Leggja þurfti málið fyrir sérstaka siðanefnd sem komst að þeirri niðurstöðu að einungis þrír þeirra máttu þiggja ókeypis ferð.
Þannig er mál með vexti að Icelandair bauð átta starfsmönnum Denver borgar í þriggja daga ferðalag til Íslands í tilefni þess að félagið byrjar að fljúga þangað í maí. Flugfélagið hugðist greiða fyrir alla ferðina og var áætlað hún kostaði 2.000 til 3.500 dollara á mann.
Sendinefndin fór hins vegar fram á að hver og einn nefndarmaður yrði látinn borga hluta ferðarinnar, eða eitt þúsund dollara. Eitthvað var útfærslan óskýr og til að fá fullvissu um málið var það lagt fyrir siðanefnd Denver borgar. Hún komst að þeirri niðurstöðu að það væri brot á siðareglum borgarinnar ef starfsmenn þægju boðsferð eða afsláttarferð, nema að öllum starfmönnum borgarinnar stæði slík ferð til boða.
Aftur á móti leyfði siðanefndin þremur fulltrúum borgarinnar að þiggja ókeypis ferð til Reykjavíkur, í því skyni að fagna áfanganum og byggja upp sterk langtímatengsl milli Colorado og Íslands, að því er segir í Denver Post.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is