Búið spil hjá Santorum – Dregur framboð sitt til baka vegna veikinda dóttur sinnar
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Mitt Romney verði forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins eftir að Rick Santorum dró framboð sitt til baka í dag. Veikindi dóttur hans og léleg útkoma í skoðanakönnunum eru helstu ástæðurnar.
Santorum hafði veitt Romney verðuga keppni en sá síðarnefndi hefur tekið nokkuð afgerandi forystu á síðustu vikum. Úrslitastund var fyrir Santorum þann 24. apríl, þegar kosið verður í fimm ríkjum. Kannanir höfðu sýnt að Romney hafði yfirhöndina í þeim öllum, meira að segja í Pennsylvaníu, heimaríki Santorums.
En það er önnur og veigameiri ástæða fyrir því að Santorum kastar inn hvíta handklæðinu á þessum tímapunkti. 3 ára dóttir hans, Bella, glímir við alvarleg veikindi og hefur verið á sjúkrahúsi undanfarnar vikur. Af þeim sökum hafði Santorum ekki getað sinnt kosningabaráttunni sem skyldi.
Við tókum þá ákvörðun við eldhúsborðið að hella okkur út í þessa baráttu, þótt allar líkur stæðu gegn okkur, og við tókum þá ákvörðun yfir helgina að hætta ekki að berjast, þótt þessu forsetakapphlaupi sé lokið og við munum hætta kosningabaráttunni frá og með deginum í dag,
sagði Santorum í 14 mínútna ræðu sem hann hélt fyrir stuðningsmenn sína. Athygli vakti að hann lýsti ekki yfir stuðningi við Mitt Romney. Santorum hringdi í Romney fyrr í dag og tilkynnti honum þessa ákvörðun sína.
Ron Paul og Newt Gingrich hafa enn ekki dregið sig út úr forvalinu, þótt vonir þeirra til að hljóta útnefningu séu litlar sem engar. Romney þarf aðeins 100 kjörfulltrúa til viðbótar til að tryggja sér útnefningu og ætti það að reynast honum auðsótt.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
