Skuldavandinn lætur aftur á sér kræla – Örvænting á mörkuðum eftir rólegar vikur
Eftir rólegar vikur á hlutabréfamörkuðum undanfarnar vikur eru fjárfestar aftur farnir að sýna merki um ótta við skuldavandann í Evrópu. Böndin beinast sem fyrr einkum að Ítalíu og Spáni.
Víða í kauphöllum Evrópu mátti sjá rauðar tölur og segir í frétt Guardian að fjárfestar hafi selt bréf sín í mikilli örvæntingu.
Spánn eru í miðju Evrópustormsins,
segir Luis de Guindos, fjármálaráðherra Spánar, sem telur þó að landið þurfi ekki á björgunarpakka að halda, enn sem komið er.
Á Ítalíu hefur sérfræðingastjórn Marios Monti mætt töluverðri andstöðu við umbætur á vinnumarkaði og veldur það áhyggjum fjárfesta. Þá hafa þeir áhyggjur af því að grískir kjósendur hafni boðuðum niðurskurðaraðgerðum í þingkosningunum 6. maí sem og að Nikolas Sarkozy verði bolað frá völdum í komandi forsetakosningum í Frakklandi.
Mesta athyglin er á Spáni núna og svo gæti farið að það þurfi að koma Grikkjum aftur til bjargar, þannig að skuldavandinn á evrusvæðinu er ekki á undanhaldi, þvert á móti virðist hann fara versnandi,
segir Daniel Hwang hjá Forex við Guardian. Hlutabréf á Wall Street féllu einnig í verði, fimmta daginn í röð. Auk skuldavandans í Evrópu bárust þær fréttir í vikunni að fjölgun starfa vestanhafs var minni en búist hafði verið við.
Fjárfestar hafa flutt sig yfir í öruggari fjárfestingar, til að mynda í gull, Bandaríkjadollar og skuldabréf, einkum þýsk, bresk og bandarísk.
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, ítrekaði í dag að stjórnvöld verða að halda fast í niðurskurðaráætlun sína.
Það er enginn vafi á því að framtíð Spánar er í húfi, sem og hagvöxtur og atvinnusköpun á komandi árum.
Atvinnuleysi á Spáni er nú 23 prósent og er annar hver einstaklingur undir 25 ára aldri án atvinnu.
Líklegt er að skuldavandinn verði helsta umræðuefnið á fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem haldinn verður í Washington í næstu viku. Talið er að Christine Lagarde, forseti AGS, noti tækifærið og fari fram á auknar fjárveitingar til sjóðsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
