Viðskipti Þriðjudagur 10.04.2012 - 16:48 - Ummæli ()

Sögulegur fríverslunarsamningur í bígerð – ESB og Bandaríkin kanna jarðveginn

Líkur eru á að Bandaríkin og Evrópusambandið hefji viðræður um fríverslunarsamning á næstunni. Þetta er meðal annars gert til að bregðast við uppgangi ríkja eins og Kína, Brasilíu og Indlands.

Fríverslunarsamningurinn myndi ná yfir öll svið viðskipta, þar með talið landbúnað, að því er vefsíðan Euractiv greinir frá. Tvíhliða viðskipti yfir Atlantshafið nema árlega um 490 milljörðum evra, en slíkur samningur myndi að líkindum stórefla viðskipti þessara tveggja viðskiptablokka.

Sérstakur starfshópur vegna hugsanlegra fríverslunarviðræðna hefur verið stofnaður og er hann leiddur af Ron Kirk viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Baracks Obama og Karel De Gucht, framkvæmdastjóra viðskiptamála í framkvæmdastjórn ESB. Það er til marks um alvöru málsins að svo hátt settum einstaklingum sé falið að leiða starfshópinn.

Starfshópurinn mun skila af sér frumskýrslu í júní og lokatillögum í lok ársins. Þrýstihópar beggja vegna Atlantshafsins hafa þrýst verulega á um að slíkur samningur verði gerður.

Líklegt er að ágreiningur um landbúnaðarmál verði helsti ásteytingarsteinninn í viðræðunum, ef af verður, því bandarískir framleiðendur hafa löngum kvartað undan heftum aðgangi að Evrópumakarði.

Aðild Íslands að ESB myndi þýða að Ísland gengur inn fríverslunarsamninginn, ef af honum verður. EFTA ríkin hafa lengi leitast við að gera fríverslunarsamning við Bandaríkin, auk þess sem íslensk stjórnvöld hafa falast eftir slíkum samningi.

Ekkert hefur orðið að slíkum samningi. Í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar á Alþingi í fyrra kom fram að fyrir því væru einkum tvær ástæður. Annnars vegar hafa Bandaríkin gefið skýrt til kynna að markaðsaðgangur fyrir landbúnaðarvörur yrði bættur verulega frá því sem nú er. Hins vegar hafa Bandaríkin gefið til kynna að Ísland sé ekki ofarlega á forgangslista þeirra yfir hugsanlega samningsaðila við gerð fríverslunarsamninga.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is