Þriðjudagur 10.04.2012 - 13:00 - Ummæli ()

Steingrímur kominn í kosningaham – Við skulum ekki láta öðrum eftir að hirða af okkur árangurinn

Steingrímur er farinn að huga að kosningum.

„Færri einkaþotur og minni glæsileiki á yfirborðinu eru ekki mælikvarði á raunveruleg lífsgæði. Aukinn jöfnuður er það hins vegar. Staðreyndirnar tala sínu máli um að byrðunum af áfallinu hefur verið jafnað þannig að hvaða „rauð-græn“ ríkisstjórn sem er getur verið stolt af.“

Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, í grein sem hann ritar á Smuguna, þar sem hann fer yfir stöðu efnahagsmála.

Steingrímur rifjar upp að við efnahagshrunið hafi önnur lönd keppst við að fullvissa umheiminn að þau væru ekki Ísland, sem öðlaðist heimsfrægð gagngert vegna hrunsins. Traustið til Íslands var horfið, segir Steingrímur.

Hver er staðan nú rúmum þremur árum síðar? Hvernig lítur umheimurinn á Ísland? Gæti hugsast að Grikkir, Írar, Portúgalir og jafnvel Spánverjar og fleiri vildu skipta?

Steingrímur týnir til ýmsar hagtölur sem benda til þess að verulegur árangur hafi náðst í ríkisfjármálum; Halli á ríkissjóði er kominn úr tveggja stafa tölum, ísland er eitt fárra ríkja OECD með jákvæðan frumjöfnuð og atvinnuleysi með því minnsta sem mælist í Evrópu. Þá hefur kaupmáttur aukist tvö ár í röð og yfirveðsettum heimilum fækkað um 15 þúsund.

Enginn ræðir lengur um mögulegt greiðslufall landsins. Áhættuálagið á Ísland er undir meðaltali Evrópuríkja. Árangur landsins á þessum þremur árum vekur athygli og jákvætt umtal erlendis. Ísland hefur endurheimt fjárhagslegt sjálfstæði sitt og traust er borið til ríkisins.

Steingrímur viðurkennir þó að erfiðleikarnir séu ekki að baki. Skuldabyrði heimila sé enn of þung og atvinnuleysi of mikið. Það breyti því þó ekki að „geysilegur árangur“ hefur náðst og ísland er „komið út af hættusvæðinu“.

Það er ekki ímyndað eða gerviríkidæmi í 2007 stíl sem málið snýst um heldur lífsgæði og velsæld sem innistæður eru fyrir.

Því næst beinir formaðurinn spjótum sínum að Sjálfstæðisflokknum sem hann segir hafa stundað „markvissa niðurrifsstarfsemi“ í stjórnarandstöðu. Þannig hafi flokkurinn staðið gegn öllum breytingum á stjórnarskrá, rekið háværa andstöðu gegn öllum breytingum á kvótakerfinu og kvartað yfir því að ríkasti hluti landsmanna sé látinn leggja meira af mörkum.

Nema hvað, þetta er sami gamli Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur ekkert lært. Því er merkilegt að sjá Sjálfstæðisflokkinn fara frekar upp á við en hitt í skoðanakönnunum. Er það raunverulega þannig að fleiri og fleiri vilja færa honum völdin aftur.

Steingrímur hugar því næst að þingkosningum sem haldnar verða á næsta ári. Segir hann að haldi efnahagsbatinn áfram verði kosið við allt aðrar og betri aðstæður en vonir stóðu til árið 2009. Varla sé „minni allra svo laskað“ að þeir vilji fá önnur 18 ár af „kreddu og aukinni misskiptingu.“.

Við skulum aldrei sjá eftir þeim fórnum sem það kostaði að koma Íslandi út úr verstu efnahagskreppu í sögu lýðveldisins og við skulum ekki baráttulaust láta öðrum eftir að hirða af okkur árangurinn.

Grein Steingríms á Smugunni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is