Áhugi Íslendinga á Kanadadollar – Skil ekkert af hverju þeir eru að íhuga þetta, segir prófessor
Áhugi Íslendinga á upptöku Kanadadollars er Norðmönnum mikið hugðarefni, en fjallað er um málið á norska viðskiptamiðlinum e24.no í dag. Þar er meðal annars rætt við íslenskan hagfræðiprófessor sem segist ekkert botna í þessum áhuga.
Í greininni er fjallað um fund sem Steingrímur J. Sigfússon, efnahagsráðherra, átti með stjórnvöldum í Ottawa á dögunum, þar sem einhliða upptaka Kanadadollars var rædd á óformlegum nótum.
Rætt er við Rögnvald Hannesson, prófessor í hagfræði við Norges Handelshøyskole í Bergen, sem furðar sig á þessari umræðu. Rögnvaldur er fæddur á Íslandi, en hefur verið norskur ríkisborgari síðan árið 1978.
Þetta [Kanadadollar] er jaðarmynt og ég skil ekki hvers vegna þeir eru að íhuga þetta. Mörg lönd sem lent hafa í efnahagsþrengingum hafa tekið upp Bandaríkjadollar. Það er alþjóðleg mynt sem myndi að mínu mati henta Íslandi mun betur. Ég veit ekki hvers vegna þetta er til umræðu, en það hefur líklega eitthvað með hugmyndafræði og pólitík að gera.
Rögnvaldur veltir jafnframt upp þeim möguleika að Ísland taki upp evru án þess að ganga í ESB, líkt og Svartfellingar gerðu á sínum tíma. Það sé þó varla raunhæft þar sem Ísland á í aðildarviðræðum við sambandið.
Vitnað er í orð prófessorsins Øystein Noreng sem lét hafa eftir sér að Íslendingar sæju sér eflaust mikinn hag í því að taka upp norska krónu. Með henni fengju Íslendingar stöðuga mynt og sparnaður almennings yrði öruggari.
Rögnvaldur telur litlar líkur á að þetta verði að veruleika.
Það veltur allt á því hvort Norðmenn hafa áhuga á þessu. Hvað græða þeir á þessu? Við vitum öll hvernig staðan er á Íslandi og peningabandalag myndi líklega hafa neikvæðar afleiðingar fyrir Noreg.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
