Framkvæmdastjórn ESB fer fram á aðild að Icesave málinu fyrir EFTA dómstólnum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur óskað eftir því að fá aðild að Icesave málinu sem nú er rekið fyrir EFTA dómstólnum. Sjaldgæft er að þessu úrræði sé beitt, þótt heimild sé til þess í lögum.
Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, skaut Icesave málinu fyrir EFTA dómstólinn í desember, eftir að íslenskir kjósendur höfðu í tvígang hafnað samningum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Dóms er að vænta í lok árs.
Samkvæmt reglum um meðferð mála fyrir EFTA dómstólnum má framkvæmdastjórn ESB, sem og hvert og eitt aðildarríki ESB og EFTA, taka þátt í málarekstri fyrir dómstólnum með tvennum hætti. Annars vegar með því að senda dómstólnum athugasemdir vegna þess máls sem er til úrlausnar og hins vegar með því að fá aðild að málarekstrinum sjálfum.
Samkvæmt frétt RÚV er fyrri leiðin nokkuð algeng, en mun sjaldgæfara er að þriðji aðili krefjist aðildar að dómsmálum. Áður en frestur til að krefjast aðildar að Icesave-málinu rann út fór framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fram á að fá aðild að því og styðja þannig við ESA í málarekstrinum gegn Íslandi.
Dómstóllinn þarf að heimila það og íslensk stjórnvöld hafa nokkra daga til að gefa álit sitt á því.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
