Viðskipti Miðvikudagur 11.04.2012 - 10:47 - Ummæli ()

Iceland Express tapaði 2,7 milljörðum í fyrra – Bjartir tímar framundan, segir talsmaður

Tap Iceland Express nam um 2,7 milljörðum króna í fyrra og leikur vafi um rekstrarhæfi eiganda félagsins. Annað hvort þarf að leggja félaginu til nýtt eigið fé eða breyta skuldum þess í eigið fé. Talsmaður félagsins segir hins vegar bjarta tíma framundan.

Iceland Express er í eigu Fengs ehf. sem er í eigu Pálma Haraldssonar. Í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins, segir að Iceland Express hafi ekki skilað inn ársreikningi fyrir árið 2011, en blaðið telur sig hafa heimildir fyrir því að tapið í fyrra hafi numið 2,7 milljörðum króna.

Vitnað er í ársreikning Fengs fyrir árið 2010 þar sem segir að að rekstrarhæfi félagsins sé brostið, nema til komi nýtt eigið fé eða skuldum verði breytt í eigið fé. Einu eignir Fengs eru Iceland Express og breska flugfélagið Astraeus sem fór í slitameðferð í fyrra.

Tap Fengs árið 2010 nam 1,5 milljörðum króna og er að mestu til komið vegna niðursfærslu viðskiptavildar út af taprekstri Iceland Express og Astraeus, að því er DV greinir frá í dag. Eigið fé Fengs er hins vegar enn jákvætt og stendur í 285 milljónum.

Iceland Express hefur á liðnum misserum dregið saman seglin og fækkað áfangastöðum. Var Ameríkuflugi félagsins til að mynda lagt niður auk þess sem áfangastöðum í Evrópu var fækkað lítillega.

Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, viðurkennir að reksturinn í fyrra hafi verið félaginu erfiður. Í fyrra voru hins vegar lagðir tveir milljarðar króna inn í félagi sem treystu rekstur félagsins.

Alger viðsnúningur hefur orðið í rekstri félagsins frá því ný yfirstjórn tók til starfa sl. haust. Sala farmiða hefur aukist umtalsvert á fyrstu mánuðum ársins og horfur fyrir sumarið eru góðar.

Heimir segir félagið horfa björtum augum til framtíðar og vísar þar í aukningu í bókunum. Þær sýni að viðskiptavinir kunni að meta þær breytingar sem gerðar hafa verið, en félagið hóf samstarf við tékkneska flugfélagið Holidays Czech Airlines eftir að Astraeus varð gjaldþrota. Stundvísi véla á vegum Iceland Express hefur snarbatnað við þau skipti.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is