Miðvikudagur 11.04.2012 - 21:19 - Ummæli ()

Sjö mánuðir til kosninga – Obama og Romney strax byrjaðir að skylmast

Barack Obama og Mitt Romney eru þegar byrjaðir að skylmast í fjölmiðlum, þótt ekki sé liðinn nema sólarhringur síðan Rick Santorum dró sig út úr kosningabaráttunni. Sjö mánuðir eru í kosningar og má búast við að baráttan verði hörð og um leið óvægin.

Repúblíkanar ætla að leggja allt í sölurnar fyrir þessar kosningar, enda mikið undir í þeirra herbúðum. Þeir hafa barist hart gegn öllum tillögum Demókrata um skattahækkanir svo ekki sé minnst á nýja heilbrigðiskerfið sem Obama tókst með herkjum að ná í gegn.

Stuðningsmenn Obama riðu á vaðið strax í dag og birtu myndband sem sýnir neyðarlegustu uppákomur Romneys í forvalskosningunum – og voru þær all nokkrar – og honum lýst sem auðmanni í engum tengslum við raunveruleikann.

Þótt Mitt Romney hafi ekki enn tryggt sér formlega útnefningu Repúblíkana, þá er hann nú þegar kominn í hlutverk forsetaframbjóðanda. Svaraði hann Obama fullum hálsi.

Hann er einungis að beina athyglinni frá mislukkaðri efnahagsstefnu sinni, sem er sú að honum hefur ekki tekist að skapa störf. Þessi forseti stendur fyrir allt það sem gömlu Demókratarnir stóðu fyrir: stór ríkisstjórn, velferðarríkisdemókratar.

Þessar skeytasendingar eru til marks um það hvað kjósendur mega eiga í vændum í kosningabaráttunni. Romney mun gera allt til að sýna fram á að Obama er ekki fær um að koma bandarískum efnahag á réttan kjöl, á meðan Obama og hans stuðningsmenn munu reyna sýna fram á að Romney sé hluti af ríku elítunni sem á ekkert sameiginlegt með bandarískum almenningi. Til að mynda hefur Obama hamrað á því að Romney sé einn þeirra sem borgar mun lægra hlutfall tekna sinna í skatta en hinn venjulegi Bandaríkjamaður.

Romney á þó erfitt verk fyrir höndum. Ekki bara þarf hann að fella sitjandi forseta, heldur þarf hann einnig að vinna íhaldssama Repúblíkana á sitt band, þá sem voru fylgjandi Rick Santorum.  Það hefur vakið athygli vestanhafs að Santorum hefur ekki enn lýst yfir stuðningi við Romney, sem bendir til þess að íhaldsmenn eru hikandi við að taka Romney í sátt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is