Viðskipti Fimmtudagur 12.04.2012 - 10:33 - Ummæli ()

Hættan sú að einn daginn þurfum við leyfi Seðlabankans til að kaupa jakkaföt og dýra skó

Hætta er á að eftir fáein ár átta Íslendingar á því að fyrirtækjum verður bannað að eiga gjaldeyrisreikninga og almenningur þarf leyfi Seðlabankans til að kaupa bíl, jakkaföt og dýra skó, segir Árni Páll Árnason, þingmaður. Hann vill að samið verði um að evrópski seðlabankinn komi Íslandi til aðstoðar við að afnema gjaldeyrishöft.

Fréttablaðið birtir í dag þriðju og síðustu grein Árna Páls Árnasonar um gjaldeyrishöft og þann vanda sem þau skapa. Hann segir vandann sífellt aukast.

Froskur sem settur er í heitt vatn hoppar upp úr, en ef hann er settur í kalt vatn og kveikt undir soðnar hann því hann tekur ekki eftir breytingunni. Hættan er sú að okkur fari eins – við tökum ekki eftir þeim breytingum sem verða, dag frá degi, á viðskiptaumhverfi okkar og rönkum við okkur eftir fáein ár þegar fyrirtækjum verður orðið óheimilt að eiga gjaldeyrisreikninga og við þurfum leyfi frá Seðlabankanum til að kaupa okkur bíl, jakkaföt, kjól eða dýra skó.

Ein útfærslan sem Árni Páll bendir á til að leysa vandann er sú að semja við Evrópusambandið og evrópska seðlabankann, enda ljóst að ekkert ríki gengur inn í sambandið með gjaldeyrishöft á bakinu.

Árni Páll segir að ESB hafi ítrekað viðurkennt þá fordæmalausu stöðu sem Ísland lenti í og til að mynda hafi Olli Rehn, framkvæmdastjóri gjaldmiðilsmála, heitið stuðningi sambandsins við afnámsferlið sem slíkt.

Þegar ég ræddi við Jean-Claude Trichet, þáverandi seðlabankastjóra, um stöðuna á sama tíma, hristi hann höfuðið yfir þeim vanda sem aflandskrónueign upp á tæp 30% af þjóðarframleiðslu skapaði og kallaði það fordæmislausan vanda. Hvað ætli Mario Draghi, eftirmaður hans, myndi segja við aflandskrónueign upp á um 60% af þjóðarframleiðslu, eins og nú er orðin raunin?

Árni Páll segir að ein leiðin í þessu efni sé sú að evrópski seðlabankinn veiti fyrirgreiðslu til að tryggja það útflæði gjaldeyris sem verður þegar höftin verða afnumin, annað hvort strax í upphafi eða á fárra ára tímabili, með endurgreiðslu yfir lengra tímabil.

Slík lausn myndi væntanlega valda því að krónan félli minna en ella við afnám haftanna og greiða fyrir því að rétt verð fengist á hana fljótt, svo auðveldara væri að ganga beint inn í ERM II og taka upp evru án vandkvæða í kjölfarið.

Árni segir vandamálið sem þjóðin standi frammi fyrir sé ekki einfalt, síst í aðdraganda kosninganna. Vitað er að afnám hafta mun valda gengisfalli krónunnar og verðbólgu í kjölfarið, með tilheyrandi áhættu fyrir skuldug heimili.

En á öllum vanda er lausn. Okkar er að finna hana saman.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is