Ögmundur æfur – ESB vill hafa okkur á hnjánum þegar kemur að aðild
„Þessi ósvífna aðkoma Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nú kórónar hins vegar allt,“ segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, um aðkomu ESB að Icesave málaferlunum. Hann telur að ESB vilji koma Íslandi „á hnén“ áður en til aðildar kemur.
Framkvæmdastjórn ESB óskaði eftir því að eiga aðild að dómsmáli sem Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, höfðaði á hendur íslenska ríkinu vegna Icesave málsins. Þetta er í fyrsta sinn sem ESB óskar eftir að gerast aðili máls fyrir dómstólnum.
Ögmundur er allt annað en hrifinn af þessum afskiptum sambandsins. Í harðorðri grein sem hann skrifar á heimasíðu sína leiðir hann líkum að því að annarlegir hagsmunir liggi þar að baki.
Í reynd þarf þetta þó ekki að koma á óvart. Líklegt má heita að ESA hafi haft samráð við Framkvæmdastofnun Evrópusambandsins áður en ákveðið var að láta til skarar skríða gegn Íslandi. Eða hvers vegna skyldu fulltrúar Noregs og Lichtenstein hafa séð ástæðu til að taka upp hanskann fyrir Hollendinga og Breta (þá hina sömu og beittu hryðjuverkalögum gegn Íslandi á sínum tíma)? Ekki verður sagt að hlutur Noregs og Lichtenstein hjá ESA sé beinlínis stórmannlegur,
segir Ögmundur og spyr hvað vaki fyrir Evrópusambandinu.
Er ESB ef til vill að reyna að slíta viðræðunum við Ísland? Eða er það kannski þannig – sem ég held að sé líklegra – að því aðeins vilji ESB okkur inn í sambandið að áður verðum við komin á hnén. Að því hallast ég. En ætlum við þangað niður? Niður á hnén? Að sjálfsögðu ekki.
Ögmundur segir að nú þurfi að færa efnislegar niðurstöður aðildarviðræðnanna upp á borðið hið fyrsta og láta þjóðina útkljá málið.
Ekki sakar að hafa nú fengið að kynnast réttarvitund Framkvæmdastjórnar ESB! Á sinn hátt er það efnisleg niðurstaða.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is