Íslensk stjórnvöld leggjast ekki gegn aðild ESB að Icesave málinu – Fagna tækifærinu
Íslensk stjórnvöld telja að það þjóni hagsmunum íslenskra stjórnvalda best að leggast ekki gegn meðalgöngu framkvæmdastjórnar ESB í dómsmálinu sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur höfðað gegn Íslandi. Þvert á móti fagna þau tækifærinu á að benda á þá annmarka sem eru á málsmeðferð EFTA-dómstólsins.
Þetta kemur fram í svari utanríkisráðuneytisins til forseta EFTA dómstólsins á beiðni framkvæmdastjórnarinnar um meðalgöngu í málinu. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að svarið sá byggt á ráðgjöf aðalmálflytjandans, Tim Ward, og málflutningsteymisins sem skipað var honum til ráðgjafar.
Bent er á að frá því að EES samningur tók gildi hefur framkvæmdastjórnin alltaf stutt ESA í þeim málum sem stofnunin hefur stefnt fyrir EFTA-dómstólinn. Það hefur þó alltaf verið gert skriflega, en þetta er í fyrsta sinn sem farið er fram á meðalgöngu.
Aðalmálflytjandinn og málflutningsteymið hafa fjallað ítarlega um málið. Mörg sjónarmið komu þar til skoðunar en þegar til þess var litið að málflutningi framkvæmdastjórnarinnar yrði ekki á annan hátt svarað skriflega var það einróma niðurstaða þeirra að það þjónaði best hagsmunum Íslands að leggjast ekki gegn meðalgöngu hennar í málinu,
segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. Er það því lagt í hendur EFTA-dómstólsins að ákveða hvort meðalganga framkvæmdastjórnar ESB verði leyfð. Enn fremur segir í tilkynningunni:
Af hálfu stjórnvalda er að þessu leyti ástæða til að fagna því tækifæri sem annars hefði ekki skapast til að draga athyglina að þessum annmarka á málsmeðferð EFTA-dómstólsins og vonir bundnar við að dómstóllinn taki athugasemdir stjórnvalda í þessa veru til greina.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is