Föstudagur 13.04.2012 - 11:45 - Ummæli ()

Jóhanna vildi sennilega ekki niðurlægja ráðherrann opinberlega – Á slyðruorðið skilið

Ólína Þorvarðardóttir, alþingismaður.

Ástæðan fyrir því að Jón Bjarnason fékk að halda forræði yfir kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar svo lengi sem raun bar vitni, var sennilega sú að Jóhanna Sigurðardóttir vildi ekki niðurlægja hann opinberlega, segir þingmaður.

Eftir að Jóhanna gagnrýndi seinagang Jóns á Alþingi svöruðu þeir Jón og Atli Gíslason að bragði og vísuðu ábyrgðinni á Guðbjartsnefndina svokölluðu sem fjallaði um málið. Sú nefnd hafi lokið vinnu sinni ári síðar en áætlað var. Sögðu þeir enn fremur að Jóhanna og flokkur hennar hafi náð að beygja VG og keyra fram markaðslausnir í sjávarútvegi, í stað félagshyggju og byggðasjónarmiða.

Í grein sem Ólína skrifar á Eyjuna segir hún umræddra grein tilraun til að reka slyðruorðið af Jóni, en það slyðruorð eigi hann fullkomlega skilið.

Segir Ólína að forsætisráðherra hafi gert ítrekaðar tilraunir til að halda Jóin að verki við að semja nothæft frumvarp. Hann hafi fengið liðsstyrk innan úr ríkisstjórninni og hópi stjórnarþingmanna til  þessa.

Á þessu gekk mánuðum og misserum saman. Af tillitssemi við ráðherrann – sennilega til þess að niðurlægja hann ekki opinberlega – fékk Jón Bjarnason engu að síður að halda forræði málsins, svon lengi sem stætt var á því. Þannig var allt reynt sem hægt var til þess að þoka málinu áfram, þrátt fyrir þvergirðingshátt ráðherrans og augljósan vandræðagang.

Ólína segist hafa komið að þessari vinnu og fylgst grannt með framgangi málsins, en hún geti ekki „þagað yfir því sem rétt er“.

Þyngst er auðvitað ábyrgð ráðherrans fyrrverandi. Og það er raunalegt – en því miður einnig afhjúpandi – að sjá nú yfirklór hans og afbökun.

Hér má lesa grein Ólínu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is