Viðskipti Föstudagur 13.04.2012 - 09:00 - Ummæli ()

Segir „ömurlegt“ að hlusta á talsmann stækkunarstjóra ESB – Þarf ekki að skipta um forrit hjá framkvæmdastjórninni?

Árni Páll er ósáttur við vinnubrögð framkvæmdastjórnar ESB.

Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir „ömurlegt“ að hlusta á málflutning talsmanns stækkunarstjóra Evrópusambandsins, sem sagði í gær að tilgangur afskipta ESB af Icesave-málinu væri að vernda reglur ESB um innistæðutryggingar. Hann spyr hvort ekki þurfi að skipta um forrit hjá framkvæmdastjórninni.

Peter Stano, talsmaður Stefan Fühle stækkunarstjóra ESB, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að ástæða þess að ESB gekk inn í dómsmál ESA gegn Íslandi vegna Icesave-málsins, hafi verið sú að vernda þyrfti reglur ESB um innistæðutryggingar. Málið væri ótengt aðildarviðræðum Íslands við sambandið.

Með þessu skrefi verndar framkvæmdastjórnin þörfina á skýrleika varðandi skyldur Íslands á sviði fjármálaþjónustu, auk skýrleika og samkvæmni í lögum ESB og EES og lagalegar skyldur EFTA-ríkja og ESB-ríkja. Slíkur skýrleiki er mikilvægur til að viðhalda trausti á ESB-reglum um innistæðutryggingar, innri markaðinn og loks á fjármálastöðugleika í Evrópu,

sagði Stano. Árni Páll gerir alvarlegar athugasemdir við þennan málflutning talsmannsins á Facebook síðu sinni í gærkvöldi.

Það er ömurlegt að sjá talsmann stækkunarstjórans flytja þennan margtuggna órökstudda boðskap. Enn einn ganginn er því haldið fram að Ísland eigi að bera ábyrgð á því að innstæðutryggingakerfi standist hrun heils fjármálakerfis, þótt framkvæmdastjórn ESB sjálf eigi engin svör við því hvernig bregðast eigi við slíku kerfishruni – hvorki samkvæmt gildandi regluverki né með nýrri tilskipun.

segir Árni Páll og bætir við:

Engin þörf er að stefna Íslandi til að tryggja að innstæðutryggingar virki innan Evrópu – við brugðumst við algeru fjármálahruni með svo árangursríkum hætti að Bretar einir munu græða um milljarð punda á að tryggja innstæður eigin borgara. Er ekki tími til kominn að skipta um forrit hjá framkvæmdastjórninni?


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is