Viðskipti Föstudagur 13.04.2012 - 20:10 - Ummæli ()

Útlendingar eiga 15 af 100 stærstu fyrirtækjum landsins – Bakkavör stærst

Bakkavör er stærsta fyrirtæki Íslands. Óvissa ríkir um eignarhlut bræðranna Lýðs (t.v.) og Ágústs.

Fimmtán af 100 stærstu fyrirtækjum Íslands eru í eigu útlendinga. Stærsta fyrirtæki landsins, Bakkavör, er í eigu innlendra og erlendra kröfuhafa.

Þetta kemur fram í úttekt Frjálsrar verslunar á 100 stærstu fyrirtækjum landsins.

Stærsta fyrirtæki landsins er Bakkavör. Erlendir og innlendir kröfuhafar eiga 67 prósenta hlut í fyrirtækinu, en bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir eiga 33 prósent. Óvíst er hvort þeir nái að halda hlut sínum í fyrirtækinu. Öll starfsemi fyrirtækisins er erlendis.

Actavis, sem er enn í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar en er í söluferli samkvæmt fréttum, er í öðru sæti og þriðja stærsta fyrirtækið er Icelandic Group sem er alfarið í eigu Framtakssjóðs Íslands.

Alfesca er fjórða stærsta fyrirtækið, en það er ekki lengur íslenskt heldur í eigu franskra aðila. Marel er svo í fimmta sæti.

15 fyrirtæki eru í eigu útlendinga. Þetta eru stór fyrirtæki á borð við Íslandsbanka, Arion banka, Alcoa, Norðurál, Össur, Ístak, ÍAV, Vífilfell og HS Orku, svo einhver séu nefnd.

47 fyrirtæki eru í eigu einstaklinga. Þau stærstu eru Actavis, Samskip Ólafs Ólafssonar, Samherji, Norvik, Primera Travel Group og olíufélögin Olís og Skeljungur.

Ríki og sveitarfélög eiga 10 af stærstu 100 fyrirtækjunum, samvinnuhreyfingin á sjö líkt og Framtakssjóður Íslands og lífeyrissjóðirnir.

Athygli vekur að einungis þrjú félög eru í eigu fjárfesta og lífeyrissjóða, Marel, Hagar og Sjóvá.

Þá eiga bankar og kröfuhafar 11 fyrirtæki í þessum hópi, til að mynda Bakkavör, Eimskip, Skipti, Símann, VÍS og Valitor.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is