Laugardagur 14.04.2012 - 12:10 - Ummæli ()

Bændasamtökin láti af smábýlarómantíkinni – Landbúnaður stefnir inn í brimið og klettana

Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði.

Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor við HÍ, segir að núverandi fyrirkomulag landbúnaðar á Íslandi stefni beint inn í brimið og klettana. Hann hvetur Bændasamtökin til að láta af ,,smábýlarómantíkinni”.

Þetta sagði Þórólfur í erindi sem hann hélt um stöðu landbúnaðar á ráðstefnu í Háskólanum á Bifröst. Greinir Skessuhorn frá erindi Þórólfs sem hann nefndi ,,Síðbúin umfjöllun um síðbúið andlát landbúnaðarstefnu.”

Samkvæmt útreikningum Þórólfs er þjóðhagslegt tap Íslendinga á núverandi kerfi í sauðfjárbúskap um sjö milljarðar á ári og kallaði hann eftir meiri hagræðingu í greininni. Því væri þó ekki til að dreifa á meðan Bændasamtök Íslands væru ekki tilbúin að láta af smábýlarómantík sinni, eins og Þórólfur orðaði það.

Prófessorinn segir enn fremur að til að viðhalda núverandi kerfi í sauðfjárbúskap þurfi að auka fjárframlög um 25 til 50 prósent á næstu árum. Eigi markmið búvörulaga hins vegar að nást þurfi hagræðing að eiga sér stað, meðal annars með betri nýtingu húsa, tækja og mannafla. Er það mat Þórólfs að fækkun bænda og sterkari rekstrargrundvöllur búa muni orsaka meiri nýsköpunargetu hjá bændum og meiri virðisauka fyrir þjóðarbúið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is