Laugardagur 14.04.2012 - 13:41 - Ummæli ()

Guðmundur Franklín ók undir áhrifum áfengis – Þakkar lögreglunni og viðurkennir dómgreindarleysi

Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna.

Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, var staðinn að því að aka undir áhrifum áfengis í gærkvöldi. Hann viðurkennir að hafa sýnt af sér algjört dómgreindarleysi.

Guðmundur greinir sjálfur frá þessu á Facebook síðu sinni. Þar segist hann hafa verið í matarboði og drukkið hvítvín með matnum. Var hann stöðvaður við umferðareftirlit lögreglunnar í Hafnarfirði. Hann var látinn blása í blöðru og kom í ljós að áfengismagn reyndist yfir mörkum.

Hann segir að um algjört dómgreindarleysi hafi verið að ræða, en um leið þakkar hann lögreglunni fyrir árverknina.  Hann hefur greint stjórn Hægri grænna frá atvikinu.

Yfirlýsing Guðmundar:

Ég var tekinn við umferðareftirlit lögreglunnar í Hafnarfirði í gærkvöldi og var látinn blása í blöðru og reyndist yfir mörkum um það áfengismagn sem einstaklingur má innbyrða.

Ég hafði verið í matarboði og drukkið hvítvín með matnum. Þetta er algjört dómgreindarleysi af minni hálfu, og mikilvæg lexía sem og áminning um að maður á aldrei að snerta bifreið undir áhrifum áfengis.

Til þess að allt sé upp á borðum vildi ég koma þessu á framfæri öðrum til varnaðar. Ég vil þakka lögreglunni fyrir árverkni hennar. Stjórnarmönnum Hægri grænna hefur verið greint frá málinu.

Hafnarfirði 14. apríl 2012

Virðingarfyllst, Guðmundur Franklín Jónsson formaður, Hægri grænna, flokks fólksins


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is