Laugardagur 14.04.2012 - 18:49
- Ummæli
()
Jón Kaldal selur hlut sinn í Fréttatímanum – Lætur af starfi ritstjóra
Jón Kaldal, ritstjóri Fréttatímans, hefur selt hlut sinn í blaðinu. Kaupendur eru aðrir hluthafar. Jón hefur í kjölfar þessara viðskipta látið af starfi ritstjóra.
Eftir breytinguna eru hluthafar Fréttatímans: Teitur Jónasson, Valdimar Birgisson, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Jónas Haraldsson og Haraldur Jónasson.
Jónas Haraldsson tekur við ritstjórastarfinu. Jónas er einn af stofnendum Fréttatímans og hefur verið ritstjórnarfulltrúi. Hann hefur reynslu til áratuga sem blaðamaður, frétta- og ritstjóri.
Jafnframt hefur Sigríður Dögg Auðunsdóttir verið ráðin blaðamaður á ritstjórn Fréttatímans.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
