„Konur og börn fyrst“ er mýta – Hver og einn hugsar um sjálfan sig í sjóslysum
Vísindamenn við Uppsala háskóla í Svíþjóð hafa komist að því, að sú almenna skoðun að konum og börnum sé bjargað fyrst í sjóslysum sé mýta. Staðreyndin er sú að hver og einn hugsar um sjálfan sig, ekki síst áhafnarmeðlimir sem eru ábyrgir fyrir öryggi farþega.
Vísindamennirnir köfuðu ítarlega ofan í 18 mannskæðustu sjóslysin allt aftur til ársins 1852 og skoðuðu örlög þeirra 15 þúsund farþega sem voru um borð í farþegaskipunum. Ekki er annað hægt að segja en að niðurstöðurnar séu eilítið sláandi.
Það er ætlast til þess að áhöfnin bjargi farþegunum, en niðurstöður okkar sýna að skipstjórar og aðrir áhafnarmeðlimir eru líklegri til að lifa af en aðrir farþegar,
segir Mikael Elinder, sem fer fyrir rannsókninni.
Enn fremur komumst við að því að konur og börn eru líklegri til að láta lífið en karlmenn.
Engu að síður trúir fólk þeirri staðhæfingu að í sjóháska sé allt kapp lagt á að bjarga konum og börnum. Elinder segir að það sé vegna þess að þessi háttur var hafður á þegar Titanic sökk fyrir 100 árum síðan og vegna þess hversu mikla umfjöllun það slys hefur fengið hefur þessi mýta orðið að viðteknum sannleik.
Vísindamennirnir skoðuðu einnig hvað það var sem gerði Titanic slysið frábrugðið öðrum og komust að því að þar skipti framferði skipstjórans öllu máli. Skipstjóri Titanic stóð á þilfarinu og skipaði konum og börnum um borð í björgunarbáta. Þeir sem óhlýðnuðust fyrirmælum hans áttu á hættu að verða skotnir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
