Laugardagur 14.04.2012 - 15:10 - Ummæli ()

Útvarpsstjóri blæs á gagnrýni – Segir álit fólks á Alþingi aldrei hafa risið lægra en í dag

Páll segir RÚV njóta yfirburðatrausts landsmanna, ólíkt Alþingi.

Páll Magnússon, útvarpsstjóri, segir gagnrýni þingmanna á þáttastjórnendur RÚV skjóta skökku við. Hann segir upplifun þingmanna ekki þá sömu og almennings og bendir í því samhengi á að RÚV njóti mun meira trausts en Alþingi.

Þingmennirnir Birgir Ármannsson og Gunnar Bragi Sveinsson skrifuðu grein í Morgunblaðið á dögunum þar sem þeir gagnrýndu að skoðanir starfsmanna RÚV hefðu stundum haft áhrif á umfjöllun. Bætti Gunnar Bragi því við í viðtali við sama blað að hann teldi að RÚV hefði brugðist sem sjálfstæður eða hlutlaus fjölmiðill í mörgum veigamiklum málum.

Páll segir við Morgunblaðið að gagnrýni þingmannanna skjóti skökku við.

Aldrei hefur álit fólks á Alþingi og alþingismönnum risið lægra heldur en í dag,

segir Páll. Hann segir að ef upplifun upplifun Gunnars Braga væri rétt, þá ætti það að sjást í reglulegum mælingum á trúverðugleika fjölmiðla. Staðreyndin er hins vegar sú að RÚV njóti „yfirburðatrauts“ á meðal landsmanna.

Þetta kann að vera upplifun þingflokksformanns framsóknarmanna, ég dreg það ekki í efa, þetta er hinsvegar ekki upplifun almennings á Íslandi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is