Sunnudagur 15.04.2012 - 14:44 - Ummæli ()

Össur hafnar því að ESB umsókn sé veik – Umhverfið jákvæðara en áður

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segist „algjörlega ósammála“ því að staða aðildarumsóknar að Evrópusambandinu sé veik. Þvert á móti segir hann umhverfið heldur jákvæðara en áður, þótt Icesave málið sé ekki líklegt til að auka vinsældir ESB hér á landi.

Össur var gestur Egils Helgasonar í Silfri Egils í dag þar sem hann ræddi meðal annars um Evrópumál og dómsmál Eftirlitsstofnun EFTA og ESB gegn Íslandi vegna Icesave málsins.

Össur sagðist telja að umhverfið fyrir ESB umsóknina sé almennt jákvæðara en áður. Þannig hafi flokkum sem vilja ljúka aðildarviðræðunum fjölgað á þingi, og nefndi hann Samstöðu og Bjarta framtíð í því samhengi.

Þá benti Össur á að Króatía hafi á dögunum samþykkt aðild að ESB, þrátt fyrir að skoðanakannanir hafi á tíma sýnt einungis 26 prósenta fylgi við aðild. Það sama hafi verið uppi á teningnum á Möltu þar sem menn slógust „eins og hundar og kettir“ vegna málsins. Aðild var þó samþykkt og í dag sýna kannanir að 70 til 80 prósent Maltverja telji að ESB aðild hafi verið rétt ákvörðun.

Skoðanakannanir í dag skipta engu um niðurstöðu þessa máls, nákvæmlega engu.

Össur viðurkenndi þó að Icesave málið sé ekki til þess fallið að auka vinsældir ESB hér á landi. Hann segir hins vegar aðkoma ESB að málinu styrkja stöðu Íslands í málinu. Var það til að mynda niðurstaða Tims Ward, málflutningsmanns Íslands. Þess vegna skjóti það skökku við að formenn stjórnarandstöðuflokkanna vilji nota málið til að slíta aðildarviðræðunum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is