Sunnudagur 15.04.2012 - 19:34 - Ummæli ()

Sjálfstæðisflokkurinn verður að gera hreint fyrir sínum dyrum. Mun annars ekki njóta trausts

Björn Bjarnason skýtur föstum skotum að Guðlaugi Þór Þórðarsyni.

Sjálfstæðisflokkurinn verður að gera upp ýmis innri mál sín með viðunandi hætti, annars mun hann ekki njóta trausts, segir Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra.

Þetta kom fram í máli Björns á fjölmennum fundi sjálfstæðismanna í Kópavogi um helgina. Ummæli Björns vekja athygli, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur mælst með mikið fylgi í skoðanakönnunum að undanförnu og virðist hafa sótt mjög í sig veðrið á kostnað stjórnarflokkanna.

Á heimasíðu sinni víkur Björn að framsögu sinni á fundinum og segir:

Ég talaði á fjölmennum fundi sjálfstæðismanna í Kópavogi í morgun. Einn fundarmanna vildi líkja saman húsleit hjá Baugi 28. ágúst og hjá Samherja á dögunum af því að ég sagðist telja tengsl á milli húsleitar hjá Samherja og framlagningar frumvarpsins um breytingar á fiskveiðstjórnarlögunum, hvort svipuð sjónarmið hefðu ekki ráðið hjá mér 2002 þegar leitað var hjá Baugi – ég sagðist ekki hafa verið dómsmálaráðherra og benti spyrjanda á að lesa Rosabaug yfir Íslandi.

Björn var ennfremur spurður um prófkjörsbaráttu sína og annarra flokksmanna og skrifar:

Annar stóð upp og sagði að félagi sinn hefði verið boðinn í glæsilegan morgunverð að Lágmúla 1 í prófkjörsbaráttunni haustið 2006, hann undraðist kræsingarnar, þá hafði honum verið bent á að koma í hádegisverðinn hann væri sko ekkert slor. Þetta var aðdragandi að spurningu um hvort mér þætti Sjálfstæðisflokkurinn hafa gert nægilega hreint fyrir sínum dyrum eftir hrun. Ég taldi svo ekki vera. Fram hefði komið að frambjóðandi hefði varið 25 til 30 m. kr.  að fella mig í prófkjöri. Það mundi enginn standa að prófkjörsbaráttu á sama veg núna. Flokkurinn hefði ekki gert þetta upp á viðundandi hátt, hann yrði að gera það fyrir næstu kosningar, annars nyti hann ekki trausts. Þarna var mál mitt rofið með lófataki.

Augljóst er að Björn vísar hér til prófkjörsbaráttu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns, sem bar sigurorð af honum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar árið 2007.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is