Mánudagur 16.04.2012 - 08:14 - Ummæli ()

„Martröð“ Joly senn á enda – Ekkert gengur né rekur í kosningabaráttu hennar

Eva Joly.

Fyrri umferð forsetakosninganna í Frakklandi verður um næstu helgi. Útlit er fyrir að framboð Evu Joly fyrir Græningja hafi verið afleit hugmynd, því kannanir sýna að hún bíði afhroð. Norskir miðlar tala um framboðið sem „martröð“.

Vonir Græningja fyrir kosningarnar voru miklar eftir góðan árangur í kosningunum til Evrópuþingsins 2009, þar sem Joly var kjörinn á Evrópuþingið, sem og í sveitastjórnakosningunum árið á eftir. Höfðu Græningjar vonast til að fá að minnsta kosti 8 prósent atkvæða. Samkvæmt könnunum mælist flokkurinn einungis með 2 prósent atkvæða.

Á vissan hátt þekkir hún ekki þær reglur sem eru við lýði í frönskum kosningum. Hún er of langt frá norminu til að verða forsetaframbjóðandi,

segir Vincent Martigny, franskur stjórnmálafræðingur, við hið norska Dagbladet.

Joly lítur svo á að hún hafi lent í undirróðursherferð í fjölmiðlum og að hún sé ekki tekin alvarlega vegna þess að hún er kona og að hún talar frönsku með norskum hreim.  Sumir eru á þeirri skoðun að Joly hafi einfaldlega ekki verið rétti frambjóðandinn á meðan aðrir telja að klofningur innan Græningja sé svo mikill að flokkurinn átti sér aldrei viðreisnar von í kosningunum.

Þetta er flokkur sem hefur aldrei staðið sig þegar það skiptir máli. Þess vegna kemur ekki á óvart að honum gengur mjjög illa,

segir Raion Malnes, hjá Oslóarháskóla og bendir á að Joly hafi alltaf verið umdeildur frambjóðandi í flokki þar sem hugmyndafræðilegur ágreiningur er mikill. Þá hafi flokknum aldrei tekist að koma umhverfismálum á dagskrá frambjóðendanna.

Loks er bent á að persónuleiki Joly kunni að skipta máli, það er að hún hafi einfaldlega ekki nægilega kjörþokka.

Persónan er vandamál. Þegar kannaðir hafa verið persónuleikar sex helstu frambjóðendanna, þá kemur hún alltaf verst út,

segir Jean-Francois Doridot, hjá rannsóknarfyrirtækinu Ipsos.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is