Þriðjudagur 17.04.2012 - 14:44 - Ummæli ()

AGS: Greiðslufall á evrusvæðinu myndi koma af stað enn stærri krísu en fall Lehman Brothers

Christine Lagarde, forseti AGS.

Greiðslufall og útganga ríkis úr evrusamstarfinu myndi valda mikilli örvæntingu á mörkuðum og hrinda af stað enn stærri krísu en sú sem varð þegar fjárfestingabankinn Lehman Brothers féll árið 2008, segir í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Í yfirlitsskýrslu um alþjóðahagkerfið, sem AGS gefur út á hálfs árs fresti, segir að horfur séu á hægum bata meðal þróaðra ríkja. Þar munar mestu um bjartari horfur í Bandaríkjunum. Hins vegar má ekki mikið út af bregða svo að þessum bata sé ógnað og er þar einna helst horft til evrusvæðisins.

Í skýrslunni segir að greiðslufall ríkis á evrusvæðinu og útganga þess úr evrusamstarfinu myndi leiða til mikils óróa á fjármálamörkuðum og um leið stefna myntbandalaginu í hættu. Enn fremur myndi þessi atburðarrás leiða til mun meiri óróa heldur en fall Lehman Brothers gerði í september 2008.

AGS spáir því að hagvöxtur heimsvísu verði 3,5 prósent samanborið við 3,9 prósent í fyrra. Vöxtur mun þó aukast á ný á næsta ári og verða 4,1 prósent. Gert er ráð fyrir 0,3 prósenta samdrætti á evrusvæðinu í ár og munar þar mestu um að horfur á Spáni eru enn verri nú en fyrir þremur mánuðum. Ef það tekst að koma í veg fyrir áfall mun vöxtur á evrusvæðinu taka við sér á ný á næsta ári og verða um 0,9 prósent.

Atvinnuhorfur eru enn dökkar og leggur sjóðurinn áherslu á að stuðningsnet fyrir atvinnulausa verði þétt enn frekar. Þá segir jafnframt að meira þurfi að koma til af hálfu evruríkjanna ein eingöngu beinharðar niðurskurðaraðgerðir.

Horfur í Bandaríkjunum, Kanada og Japan eru ágætar, en þar er gert ráð fyrir 2 prósenta hagvexti í ár. Hagvöxtur í Kína minnkar enn, fer úr 9,2 prósentum niður í 8,2 á meðan spáð er yfir 5 prósenta hagvexti í sunnanverðri Afríku.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is