Viðskipti Þriðjudagur 17.04.2012 - 10:08 - Ummæli ()

Nóbelshagfræðingur: Bill Gates gæti eyðilagt krónuna – Erfitt fyrir ríki eins og Ísland að halda úti eigin mynt

Nóbelshagfræðingurinn Robert Mundell.

Kanadíski nóbelshagfræðingurinn Robert Mundell segir afar erfitt fyrir smáríki eins og Ísland að halda úti eigin mynt. Fræðilega séð gætu auðmenn eins og Carlos Slim Helú og Bill Gates keypt upp allan gjaldmiðilinn og eyðilagt notagildi hans.

Íslenska krónan er gerð að umræðuefni í útvarpsþættinum Planet Money á bandarísku NPR útvarpsstöðinni. Gestur þáttarins er Baldur Héðinsson, fyrrum lærlingur hjá Planet Money, og ræðir hann ásamt þáttastjórnandanum við hina ýmsu álitsgjafa.

Þeirra á meðal er nóbelshagfræðingurinn Mundell sem hefur sérhæft sig í gjaldmiðlum og myntsvæðum. Hans skoðun er sú að afar erfitt sé fyrir ríki á stærði við Ísland að halda úti sjálfstæðri mynt.

Vandamálið við sjálfstæða mynt í svona landi er að auðmenn eins og Carlos Slim eða Bill Gates gætu keypt upp allan gjaldmiðilinn og þar með eyðilegt notagildi hans.

Mundell bætir því reyndar við að þetta gerist nær aldrei, en undstrikar engu að síður undirliggjandi vanda. Hann líkir myntsvæðum heims við stöðuvatn.

Ef steini er kastað í stöðuvatn, hefur það engin áhrif. Ef honum er kastað í litla tjörn kemur mikil gusa, áhrifin eru hlutfallslega mikil. Þar kemur stærðin inn í.

Einnig er rætt við hagfræðinginn Ársæl Valfells sem hefur talað fyrir því að Íslendingar taki upp Kanadadollar. Hann lýsir krónunni svona.

Örmynt eins og íslenska krónan þjónar ekki tilgangi sínum sem raunverulegur gjaldmiðill. Það er til marks um hversu fjarstæðukennt það er að vera með eigin gjaldmiðil í 300 þúsund manna samfélagi, að það eru fleiri sem sem nota Disney dollarann á hverjum degi heldur en íslensku krónuna.

Hægt er að hlusta á innslagið á heimasíðu NPR útvarpsstöðvarinnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is