Þriðjudagur 17.04.2012 - 10:55 - Ummæli ()

Orðrómur um uppspuna tilhæfulaus – Hér er tölvupósturinn um Svavar

Í tölvupósti sem dreift var í því skyni að koma óorði á Svavar Halldórsson, sambýlismann Þóru Arnórsdóttur forsetaframbjóðanda, er að finna fjölmörg atriði sem koma ekki heim og saman við rétta lýsingu af líkamsárás sem Svavar var dæmdur fyrir.

Fréttir af tölvupóstinum birtust í síðustu viku og svöruðu bæði Svavar og Þóra fyrir málið í fjölmiðlum.

En þegar ég fæ nafnlaust bréf um að menn liggi alvarlega veikir eftir manninn minn…Auðvitað vissum við að það yrðu alltaf einhverjar sögur en þetta er ekki fallegt. Hin sagan, þessi um meintan skilnað okkar Svavars, kom upp í tengslum við sambandsslit nöfnu minnar í Kastljósinu og hana var auðvelt að leiðrétta. En þetta er miklu verra. Vinir okkar hafa fengið símtöl um þetta. Sagan sem þeim er sögð er mjög ljót og í engu samræmi við það sem gerðist,

sagði Þóra við Fréttatímann. Orðrómur hafði verið uppi að umræddur fjöldapóstur væri ekki til, heldur hefði framboð Þóru spunnið hann upp til að bregðast við sögusögnum sem vissulega voru á kreiki. Þannig voru þó nokkrir fjölmiðlamenn sem lýstu því yfir á Facebook að þeir höfðu aldrei séð póstinn.

Eyjan hefur nú póstinn undir höndum. Þar er það staðfest, sem Svavar og Þóra héldu fram í viðtalinu, að efni póstsins er engan veginn í samræmi við það sem fram kemur í umræddum dómi. Þannig er Svavar sagður hafa verið dæmdur í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi en hann hlaut tveggja mánaða skilorð vegna árásarinnar.

Verknaðarlýsingin, þar sem Svavar er sagður í félagi við aðra menn sparkað ítrekað í höfuð mannsins að tilefnislausu, kemur ekki heim og saman við dóminn og þá er  beinlínis sagt að þau veikindi sem maðurinn glímir við í dag sé bein afleiðing árásarinnar, sem er ekki rétt.

Loks segir að Svavar hafi aldrei rætt við manninn fyrr en „í síðustu viku“ í því skyni að nefna atvikið ekki opinberlega fyrir kosningar. Svavar upplýsti hins vegar í áðurnefndu viðtali að hann hefði sæst við manninn á sínum tíma og þeir hist reglulega eftir það.

Umræddan tölvupóst má lesa hér að neðan.

Á Grensásdeildinni liggur ungur fjölskyldufaðir, orðinn óvinnufær af völdum heilaskaða sem hann hlaut þegar jafnaldrar hans, honum ókunnugir, réðust á hann þar sem hann var einn á ferð í miðborginni að næturlagi fyrir þó nokkrum árum síðan. Einn þeirra sparkaði ítrekað í höfuð hans af tilefnislausu. Sá maður var síðar dæmdur í héraðsdómi til fangelsisvistar fyrir þennan glæp, skilorðsbundið til fjögurra ára vegna þess að hann hafði áður hlotið dóm fyrir sams konar brot. Hann var líka dæmdur til bótagreiðslu, sem hann aldrei greiddi.

Árásarmaðurinn heitir Svavar Halldórsson, nú fréttamaður.

Þeir hafa ekki talað saman síðan, þar til í síðustu viku, að Svavar heimsótti hann á spítalann til þess að biðja hann að nefna þetta ekki opinberlega fyrir kosningar.

Hugsadu tig vel um fyrir kosningarnar..


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is