Viðskipti Miðvikudagur 18.04.2012 - 13:33 - Ummæli ()

Íslendingar snobba fyrir störfum: Best að ráða fólk utan af landi – „Það kann að vinna“

Skyldi þessi vera úr höfuðborginni?

Fólk utan af landi kann betur að vinna, fjöldi háskólagráða segir lítið til um hæfileika fólks til vinnu og fáir kæra sig um að sinna störfum sem ekki fela í sér starfsheitið „stjóri“.

Þessi sjónarmið koma fram í nýju riti sem Samtök atvinnulífsins hafa gefið út. Ritið heitir Uppfærum Ísland og er gefið út í tengslum við aðalfund samtakanna sem fer fram í dag. Ritið byggir á umræðu um 100 stjórnenda úr íslensku atvinnulífi og er markmiðið að kalla eftir sameiginlegri stefnumótun með stjórnvöldum um framtíð og þróun menntakerfisins.

Í kaflanum Litla Ísland er fjallað um smáfyrirtæki og stöðu þeirra í dag. Þar segir að þrengt hafi verið að rekstri smáfyrirtækja með breytingum á rekstrarumhverfi og skattalögum. Þetta hafi dregið úr áhuga fólks til að taka áhættu og stofna fyrirtæki þar sem búið er að takmarka vonir um arð.

En það virðast fyrst og fremst vera starfsmannamál sem eru stjórnendunum ofarlega. Þannig segir að þrátt fyrir mikið atvinnuleysi á Íslandi vrðist þó vera erfitt að fá fjölhæft fólk til starfa, fólk sem „kann vel til verka og vílar ekki fyrir sér að taka til hendinni“.

Mögulega hefur það áhrif að á undanförnum árum hefur fólk verið ráðið í vinnu í auknum mæli á grundvelli menntunar en ekki endilega hæfileika til að vinna. Kvarðinn sem t.d. hið opinbera ræður fólk eftir er mjög einhæfur. Fólk er hvatt til að safna háskólagráðum en hefur svo enga tryggingu fyrir því að þær muni nýtast þegar út á vinnumarkaðinn er komið. Oftar en ekki fer námið fram í litlum tengslum við atvinnulífið,

segir í greininni. Einnig kemur fram að fyrirtæki, stór sem smá, kjósi að ráða ekki fólk í vinnu, jafnvel þótt það hafi tvær eða fleiri háskólagráður.

Mörgum hefur reynst best að ráða fólk utan af landi. Það kann að vinna og hefur flest unnið með skóla og tekið þátt í vinnutörnum, t.d. í fiskvinnslu eða sláturhúsi svo eitthvað sé nefnt.

Þá virðist sem viðhorf fólks til starfa hafi breyst mjög á undanförnum árum. Er ekki laust við að Íslendingar séu orðnir afar vandlátir á störf, allt að því snobbaðir.

Ef smáfyrirtæki auglýsir eftir almennu starfsfólki í áhugaverð störf koma yfirleitt mjög fáar eða engar umsóknir en ef STJÓRI er í starfsheitinu verður allt vitlaust og umsóknir fara iðulega yfir hundrað.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is